fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Deildarstjórinn á Landspítalanum segir umdeilda tölvupóstinn vera misskilning – Stefán á Mogganum brjálaður – „Hvað er í gangi hjá Landspítalanum?“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 5. ágúst 2021 19:22

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjulegur póstur sem Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans, sendi út á stjórnendur Landspítalands í gærkvöldi hefur vakið töluverða athygli. Í póstinum sagði Stefán stjórnendunum að hætta að svara fjölmiðlum þegar þeir hringja beint í þá og beina fyrirspurnum frekar á sig og samskiptadeildina. Þá kallaði hann fjölmiðla „skrattakolla“ í tölvupóstinum við lítinn fögnuð margra í stéttinni.

Eins og við var að búast hefur innihald tölvupóstsins farið öfugt ofan í margt fjölmiðlafólk hér á landi. Einn þeirra sem hneykslast á tölvupóstinum er Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu.

„Landspítalinn ræður ekki við aðstæður sem komnar eru upp vegna kórónuveirunnar. Landspítalinn ræður ekki við verkefni sín almennt séð að sögn forstjórans og starfsfólkið er útkeyrt. Á sama tíma heldur þessi stjórnlausa stofnun út tugum manna í áróðursdeild sem stýrt er af manni sem nefndur er Stefán Hrafn Hagalín. Meðferðis hefur hann til dæmis ljósmyndara í fullu starfi! og kvikmyndatökufólk og tæknimenn svo hægt sé að framleiða hlaðvarpsþætti og myndbönd,“ segir Stefán Einar í opinni færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í kjölfar frétta um tölvupóstinn.

Þá segir Stefán Einar að nafni sinn sé nú búin að sýna spilin sín. „Kallar fjölmiðlamenn „skrattakolla“ og skipar yfirmönnum spítalans að svara þeim ekki – sérstaklega ekki úr ákveðnum númerum, meðal annars þeim sem berast af stærstu ritstjórn landsins, Morgunblaðinu. Hvað er í gangi hjá Landspítalanum? Er enginn til að taka þarna í taumana? Ef forstjórinn getur það ekki þá verður hann sjálfur að víkja og skapa pláss fyrir fólk sem undið getur ofan af þessu rugli og hætt að borga rugludöllum laun á kostnað okkar skattgreiðenda.“

„Þetta gildir sérstaklega um tiltekna…“

DV hafði samband við Önnu Sigrúnu Baldursdóttur, fram­kvæmda­stjóra skrif­stofu for­stjóra Land­spít­ala, vegna málsins. „Þetta gildir sérstaklega um tiltekna…“ sagði Anna og virtist síðan muna eftir tilmælunum frá Stefáni Hrafni í tölvupóstinum.

„Ertu búin að tala við Stefán sjálfan, ég held að það sé bara langbest, ég myndi gera það.“

„Þetta snýst auðvitað á engan hátt um að ritskoða“

Blaðamaður tók Önnu á orðinu og sló rakleiðis inn símanúmer Stefáns Hrafns í símann sinn. Stefán brást nokkuð ágætlega við símtalinu frá einum af hópi skrattakollana en hann segir að um misskilning væri að ræða. „Við fáum ofboðslegan fjölda af fyrirspurnum inn til samskiptadeildar, tugþúsundir árlega, sem við svörum samviskusamlega með því að senda fólk í viðtöl, skaffa viðmælendur, útvega upplýsingar og annað slíkt. En síðan eru fjölmiðlar, eðlilega, með tímanum komnir með ótrúlegan fjölda af símanúmerum hjá starfsfólki spítalans, sem þeir vilja geta hringt í allan sólarhringinn ef því er að skipta og það gengur ekki alveg upp. Við verðum að hvíla mannskapinn okkar,“ segir hann.

„Auðvitað vilja blaðmenn fá upplýsingar beint frá kúnni um eitthvað sem er hitamál eða þykir spennandi hverju sinni. Fólk er að vakna eða að koma af vaktinni eða úr klíník og er kannski með 10 ósvöruð símtöl frá fjölmiðlum og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Ég segi starfsfólkinu bara að beina þessu að samskiptadeildinni. Að þau geti hvenær sem er beint öllum fyrirspurnum til samskiptadeildar, sem síðan sér til þess að öllu sé svarað um leið og færi gefst. Þetta er margra ára gamalt fyrirkomulag. En þetta snýst auðvitað á engan hátt um að ritskoða hver segir hvað við hvern eða neitt, að múlbinda sérfræðinga eða eitthvað slíkt. Við leggjum þvert á móti mikið upp úr því að alltaf séu okkar bestu sérfræðingar í samskiptum við fjölmiðla og almenning.“

Stefán Hrafn bætir við: „Ég var kallaður í gær inn úr sumarfríi eftir fyrstu fjóra sumarfrísdagana síðan 2020 og eftir mjög langan vinnudag sendi ég þennan umdeilda póst á stjórnendur til að minna þá á að rúlla fyrirspurnum fjölmiðla gegnum samskiptadeild til að tryggja þjónustustig og öryggi í svörum. Þessi póstur minn fór eitthvað skakkt í sumt fólk og ég álpaðist í einhverjum þreytulegum asnaskap til að kalla fjölmiðlafólk skrattakolla.“

Stefán vitnar þá í þáttastjórnendur Dr. Football-hlaðvarpsins en þeir tala reglulega um svokallaða hreina íslensku, það er að segja að tala ekki undir rós um eitthvað mál. „Vinir mínir í Dr. Football-hlaðvarpinu lenda stundum í þessu. Að hrein íslenska fari illa í hlustendur og jafnvel þeirra heitustu aðdáendur. En ég vil fullvissa allt áhyggjufullt fólk um að Landspítali er alls ekki „project nothing“ frekar en Þróttur,“ segir Stefán, sem er einn harðasti stuðningsmaður knattspyrnuliðsins Þróttar í Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag