fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Lögreglan vill yfirheyra verjanda eins hinna grunuðu í Rauðagerðismálinu – „Ljótur leikur lögreglunnar“ segir Steinbergur

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 9. mars 2021 06:50

Steinbergur er verjandi Antons Kristins Þórarinssonar. mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um að Steinbergur Finnbogason, sem er skipaður verjandi Antons Kristins Þórarinssonar sem sat í gæsluvarðhaldi vegna morðmálsins í Rauðagerði og sætir nú farbanni, verði kallaður til skýrslutöku sem vitni í málinu.

Steinbergur skýrir frá þessu í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag en hún ber fyrirsögnina „Ljótur leikur lögreglunnar“. Í grein sinni rifjar Steinbergur upp að hann hafi áður lent í svipuðu máli en hann var handtekinn 2016 þegar hann mætti til skýrslutöku á lögreglustöðinni með skjólstæðingi sínum sem var grunaður um aðilda að umfangsmiklu peningaþvætti. Steinbergur var úrskurðaður í gæsluvarðhald og húsleit var gerð á heimili hans og lögmannsstofu. Hald var lagt á mikið af skjölum og þau afrituð. Ríkið var á síðasta ári dæmt til að greiða Steinbergi bætur vegna þessara aðgerða.

Í grein sinni segir Steinbergur að flestir vilji trúa því að réttarríkið hér á landi fari ekki í manngreinarálit. „Við tökum öll undir einkunnarorð lögreglunnar, „Með lögum skal land byggja“ og við erum líka sammála um það að hver maður sé saklaus þar til sekt hans er sönnuð. Við eigum öll rétt á sanngjarnri málsmeðferð og sakborningar mega velja sér lögmenn til þess að halda uppi eins góðum málsvörnum og frekast er unnt. Um þetta er almenn sátt í samfélaginu,“ segir hann og bætir við að stundum leiti lögreglan afbrigða og beiti jafnvel brögðum til að ljúka máli á grundvelli sannfæringar sinnar um sekt fremur en hlutlægri niðurstöðu dómara.

„Ég geri þetta að umtalsefni vegna þess að ég er – a.m.k. á meðan þessi orð eru skrifuð – skipaður verjandi sem löggan vill losna við. Ég hef um nokkurra vikna skeið í því verkefni notið skilyrðislauss trúnaðar skjólstæðings míns. Til skamms tíma sat hann í gæsluvarðhaldi og er nú í farbanni vegna gruns um tengsl við alvarlegt sakamál sem mjög hefur verið í fréttum síðustu vikurnar. Í rannsókn á mögulegum tengslum hans við sjálfan glæpinn hefur lögreglan gripið til sjaldgæfra örþrifaráða – að losa sig við lögmanninn. Hefur hún farið fram á það að ég verði kallaður til skýrslutöku sem vitni,“ segir hann því næst og bendir á að samkvæmt lögum megi hann ekki gegna störfum sem verjandi í máli ef hann er kallaður fyrir sem vitni.

„Þetta er ljótur leikur í stöðunni. Látum vera, þótt sorglegt sé, að þetta er í annað sinn sem þessum hælkróki er beitt á mig – síðast m.a. með fyrirvaralausu gæsluvarðhaldi, húsleitum og fleira sem lögreglan hefur ekki enn bitið úr nálinni með. Alvarlegra er hvernig lögreglan vegur að réttindum og andlegri líðan hins grunaða. Þar er sparkað illa í liggjandi mann. Hann valdi sér lögmann sem hann treysti, hann trúði honum fyrir öllum atriðum sem honum voru kunnug, hann hagaði vitnisburði sínum og svörum að viðhöfðu samráði við lögmann sinn og náði með honum ákveðnum áfangasigrum í vörn sinni gagnvart sakargiftum,“ segir Steinbergur.

Hann segir síðan leiða eigi sig í vitnastúkuna þar sem reynt verði að rekja garnirnar úr honum. Hann muni neita að svara spurningum sem skaða skjólstæðing hans eins og hann gerði síðast, í fyrrgreindu máli þar sem hann var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann segir að þessi leikur lögreglunnar muni væntanlega verða til að auka enn frekar á áhyggjur Antons, sem séu nægar fyrir.

„Haldi lögreglan þessum leik sínum til streitu mun ég leita allra leiða til þess að standa á bæði mínum rétti og skjólstæðings míns. Í fyrsta lagi til þess að verja hann áfram og í öðru lagi til þess að geta, með milligöngu dómstóla ef á þarf að halda, vikið mér undan spurningum sem skaðað gætu málsvörn hans. Vonandi mun svo Lögmannafélag Íslands taka þessa makalausu atburðarás til skoðunar. Það er eitthvað mikið að ef lögreglan getur ítrekað leikið þann leik að breyta verjanda í vitni til þess annars vegar að losna við hann úr málinu og hins vegar að pumpa upp úr honum upplýsingar sem hann kann að búa yfir vegna trúnaðarsambands við skjólstæðing sinn,“ segir hann síðan í niðurlagi greinar sinnar.

Steinbergur vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið og bar fyrir sig trúnaðarákvæði í lögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla