fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Fréttir

Bólusettir Íslendingar gætu átt í vandræðum með að komast til landsins

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 17. ágúst 2021 08:00

Mynd: Landspítalinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fullbólusettir Íslendingar og fólk sem hefur tengsl við landið gæti átt í vandræðum með að komast hingað til lands ef það smitast af kórónuveirunni erlendis. Ástæðan er að samkvæmt nýrri reglugerð þar að framvísa neikvæðu PCR-prófi áður en flogið er hingað til lands.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um smitvarnir sé ekkert ákvæði um þá sem hafa jafnað sig á COVID-19 veikindum er fá samt sem áður enn jákvæða niðurstöðu í PCR-prófi. Þetta getur haft í för með sér að fólk sem smitast erlendis og tekur út 10 til 14 daga einangrun þar gæti þurft að bíða í tvo mánuði áður en því er hleypt í áætlunarflug.

„Erfðaefni veirunnar getur fundist í öndunarveginum í einhverjar vikur eftir að viðkomandi hefur náð bata án þess að viðkomandi sé smitandi, því PCR-prófið er svo næmt. Þetta var mál málanna sumarið 2020 þegar landamærin voru opnuð, fyrir tíma bólusetninga. Þá voru einstaklingar sem voru búnir að fá Covid-19 að reynast með jákvætt PCR-próf þegar þeir komu til landsins. Þá vorum við í því að meta hvort þetta væri virk sýking eða eldri sýking og við gerðum það meðal annars með því að mæla mótefni,“ er haft eftir Runólfi Pálssyni, yfirmanni COVID-göngudeildarinnar. Mótefnamælingin fer fram með blóðprufu.

„Það er hægt að meta þetta með ákveðnum leiðum í PCR-prófi. Ef það er lagt mat á veirumagnið en þetta er mjög snúið mál og þessir aðilar eru í vonlausri aðstöðu til að meta það hvort þetta er einstaklingur sem er smitandi, eða hvort þetta er einstaklingur sem er búinn að fá Covid-19 og er ekki lengur smitandi en ber samt erfðaefni veirunnar í öndunarvegi,“ er einnig haft eftir Runólfi sem benti á að fólki sé hleypt inn í samfélagið eftir að það lýkur einangrun en því geti verið meinað að fara í flug hingað til lands.

Hann sagði hér á landi hafi verið lagt mat á þetta með töku blóðsýna og mælingu á mótefnum í þeim. Hann sagði einnig að það sé spurning hvernig sóttvarnayfirvöld vilji hliðra til fyrir fólki svo það komist heim ef það er í þessari stöðu. „Það eru margar erfiðar hliðar á þessu,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“