fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

„Þessi tölvu­póst­ur sam­skipta­stjór­ans er með mikl­um ólík­ind­um og hlýt­ur að hafa ein­hverj­ar af­leiðing­ar“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 6. ágúst 2021 11:30

Landspítali

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mik­ill mis­skiln­ing­ur ef yf­ir­menn hjá rík­is­stofn­un­um telja að hlut­verk fjöl­miðla sé að end­ur­varpa aðeins op­in­ber­um yf­ir­lýs­ing­um rík­is­stofn­an­anna eða taka aðeins við og birta þær upp­lýs­ing­ar sem stofn­un­um hent­ar að komi fyr­ir sjón­ir al­menn­ings. Slík sjón­ar­mið ríkja víða í ver­öld­inni en ekki á Vest­ur­lönd­um og eiga ekki að líðast,“ segir í leiðara Morgunblaðsins í dag.

Þar er farið hörðum orðum um tölvupóst deildarstjóra samskiptadeildar Landspítalans til stjórnenda spítalans, en pósturinn hefur verið mikið í fréttum eftir að Vísir.is greindi frá málinu síðdegis í gær. Í póstinum er því beint að stjórnendum að svara ekki símtölum frá fjölmiðlamönnum, þau ættu að fara í gegnum samskiptadeildina, og kallaði hann blaðamenn skrattakolla: „…þessir skrattakollar hringja 24/7.“

Deildarstjórinn, Stefán Hrafn Hagalín, ræddi við DV um málið í gærkvöld. Sagði hann að tilmælin fælu engan veginn í sér ritskoðun heldur væri þeim ætlað að hlífa þreyttum starfsmönnum við óþarfa fyrirspurnum sem hægt væri að svara í samskiptadeildinni, auk þess að stuðla að því að yfirsýn fengist yfir fyrirspurnir og blaðamönnum væri þannig betur tryggður aðgangur að upplýsingum:

„Auðvitað vilja blaðmenn fá upplýsingar beint frá kúnni um eitthvað sem er hitamál eða þykir spennandi hverju sinni. Fólk er að vakna eða að koma af vaktinni eða úr klíník og er kannski með 10 ósvöruð símtöl frá fjölmiðlum og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Ég segi starfsfólkinu bara að beina þessu að samskiptadeildinni. Að þau geti hvenær sem er beint öllum fyrirspurnum til samskiptadeildar, sem síðan sér til þess að öllu sé svarað um leið og færi gefst. Þetta er margra ára gamalt fyrirkomulag. En þetta snýst auðvitað á engan hátt um að ritskoða hver segir hvað við hvern eða neitt, að múlbinda sérfræðinga eða eitthvað slíkt. Við leggjum þvert á móti mikið upp úr því að alltaf séu okkar bestu sérfræðingar í samskiptum við fjölmiðla og almenning.“

Tölvupósturinn sé með ólíkindum

Í leiðara Morgunblaðsins segir að nú sé afar brýnt að upplýsingagjöf varðandi kórónuveirufaraldurinn sé góð. Í framhaldi af því segir:

„Við þess­ar aðstæður ger­ist það þó að deild­ar­stjóri sam­skipta­deild­ar Land­spít­al­ans send­ir stjórn­end­um spít­al­ans tölvu­póst og gef­ur þeim fyr­ir­mæli um að svara ekki fjöl­miðlum. Stjórn­end­un­um er sagt að „þess­ir skratta­koll­ar“, eins og fjöl­miðlarn­ir eru nefnd­ir, hringi á öll­um tím­um sól­ar­hrings, en til að stjórn­end­urn­ir svari ekki óvart þá er gefið upp á hvaða tölu­stöf­um síma­núm­er miðlanna byrja.“

Segir að pósturinn sé mikið áhyggjuefni vegna þess hugarfars sem hann lýsi:

„Þessi tölvu­póst­ur sam­skipta­stjór­ans er með mikl­um ólík­ind­um og hlýt­ur að hafa ein­hverj­ar af­leiðing­ar. Ekki síst vegna þess að þetta lýs­ir ein­hverju hug­ar­fari sem er veru­legt áhyggju­efni fyr­ir al­menn­ing.“

Morgunblaðið bendir á að fjölmiðlar hafi meðal annars það hlutverk að spyrja óþægilegra spurninga sem upplýsingafulltrúar og stjórnendur hafi ekki endilega áhuga á að svara. „Þetta á enn frek­ar við þegar fjöl­miðlar og al­menn­ing­ur fá á til­finn­ing­una, og hafa séð þess merki, að mark­visst sé verið að reyna að stýra umræðunni,“ segir enn fremur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag