Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar rétt fyrir klukkan níu í morgun, þar sem hvorki ökumaður né þrír farþegar voru í öryggisbeltum. Meðal farþega var þriggja ára barn sem var ekki í barnabílstól og sat í bifreið án öryggisbeltis, segir í dagbók lögreglu. Farþegar bifreiðar reyndust vera foreldrar barnsins. Skýrsla rituð á málið og barnavernd gert viðvart.
Fyrir rúmum þremur vikum stöðvaði lögreglan bifreið þar sem farþegi í framsæti hélt þá á um það bil 7 mánaða gömlu barni í fanginu. Þarna voru foreldrar barnsins á ferð með barn sitt og sögðu barnið hafa grátið mikið í barnabílstól sínum. Þá hafði faðirinn sem var farþegi losað barnið úr stólnum og sat með það í fanginu meðan móðirin ók bílnum. Barnavernd var kölluð til.
Samkvæmt íslenskum umferðarlögum eiga börn að vera í viðeigandi barnabílstólum og eru reglur upp á Landspítala þess efnis að börn fá ekki að fara heim af fæðingardeildinni nema að foreldrar hafi löglegan barnabílstól meðferðis og að barn sé fest í hann áður en farið er með það af spítalanum. Öll börn þurfa því að vera með viðeigandi öryggisbúnað þar til þau ná 150 cm á hæð.
Samkvæmt 71. grein umferðalaga eiga öll börn að vera með réttan öryggisbúnað í bíl, s.s. barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis-og verndarbúnað ásamt öryggisbelti. Í sömu lagagrein kemur einnig fram að börn undir 150 cm á hæð mega ekki vera farþegar í framsæti ef þar er uppblásanlegur öryggispúði.