fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fréttir

Reykjavíkurborg leggur dagsektir á ruslasafnara við Leifsgötu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 23. mars 2021 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur lagt dagsektir á eiganda lóðarinnar við Leifsgötu 4b. Ítrekað hefur verið farið fram á að eigandinn hreinsi lóðina. Á henni eru timbur, málmur, plast og annar úrgangur sem er lýti fyrir umhverfið og veldur hljóðmengun segir í bréfi Heilbrigðiseftirlitsins til lóðareigandans.

Fréttablaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að þeir nágrannar sem Fréttablaðið ræddi við hafi verið sammála um að lítil prýði sé af því fyrir hverfið að hafa hjólhýsi eða gúmmíbát í portinu.

Í bréfi Heilbrigðiseftirlitsins segir að farið hafi verið í eftirlitsferð 27. október og aftur 30. nóvember til að kanna hvort búið væri að hreinsa ruslið. Þá hafi aðeins verið búið að hreinsa hluta af lausamunum og úrgangi.

Enn á ný var kvartað í febrúar og var þá aftur farið í eftirlitsferð. „Enn var ekki búið að hreinsa lóðina, þvert á móti var búið að bæta úrgangi og lausamunum við. Á lóðinni mátti finna fjórar til sex þvottavélar ásamt vélarhlut úr þvottavél, ísskápa, lítinn bát, járnagrindur, dekk, slöngur, timbur, plast og annan almennan úrgang,“ segir í bréfinu.

Var eigandanum þá veittur lokafrestur til 17. febrúar. Nú er mælirinn greinilega orðinn fullur og því hafa dagsektir verið lagðar á eigandann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi
Fréttir
Í gær

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“

Einar Ágúst sneri við blaðinu eftir símtal frá þekktum handrukkara – „Þitt hjartalag á ekki heima hérna“
Fréttir
Í gær

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna

Kynntu nýtt borgarhverfi við Kringluna
Fréttir
Í gær

169 einstaklingar sem finnast ekki

169 einstaklingar sem finnast ekki
Fréttir
Í gær

Þetta er fanginn sem var frelsaður – Móðir hans í sjokki

Þetta er fanginn sem var frelsaður – Móðir hans í sjokki