fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Íslendingar umburðarlyndari gagnvart innflytjendum en áður

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 24. september 2020 08:00

Íbúar landsins eru af mörgum þjóðernum og tala mörg tungumál.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðustu þremur árum hefur umburðarlyndi Íslendinga gagnvart innflytjendum aukist nokkuð. Þetta er þveröfug þróun miðað annars staðar í heiminum þar sem umburðarlyndi gagnvart innflytjendum fer minnkandi.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag og vísar í nýja heimskönnun Gallup. Íslendingar voru á toppnum þegar síðasta svona könnun var gerð 2016 en falla nú af honum og þykja nú næstumburðarlyndasta þjóð heims. Kanadamenn eru þeir umburðarlyndustu samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Meðal annarra efstu þjóða eru Bandaríkin, Svíþjóð, Írland, Ástralía og Búrkína Fasó.

140 þúsund manns, í 145 löndum, svöruðu spurningum Gallup. Hér á landi var könnun gerði í október og nóvember á síðasta ári og var rætt við 500 manns símleiðis. Meðal þess sem spurt var um var hovrt fólk væri fylgjandi því að útlendingar flyttu til landsins, að útlendingar flyttu í næsta hús eða giftust inn í fjölskylduna.

Út frá þessu var reiknaður ákveðinn stuðull sem hækkaði úr 8,26 í 8,41 á milli kannana hjá Íslendingum.

Á botni listans eru Norður-Makedóníumenn en þar í landi er stuðullinn aðeins 1,49. Aðeins fyrir ofan eru Ungverjar, Serbar, Taílendingar og Tyrkir.

Á heimsvísu lækkaði stuðullinn úr 5,34 niður í 5,21. Þegar rýnt er í svörin sést að íbúar í þéttbýli, hámenntað fólk og ungt er jákvæðara í garð innflytjenda en fólk í dreifbýli, minna menntað og eldra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”