fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Skipstjóri hjá Samherja hjólar í Helga Seljan – „Ræðst ítrekað að fólki og fyrirtækjum“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 4. júní 2020 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, fer hörðum orðum um rannsóknarblaðamanninn Helga Seljan í pistli sem birtist á Vísi í dag. Helgi hefur lengi starfað í fjölmiðlum, en þessa stundina er hann líklega þekktastur fyrir umfjöllun sína í Kveik um Samherjamálið, þar sem viðskiptahættir Samherja í Namibíu voru teknir fyrir.

Páll heldur því fram að Helgi sé duglegur að lýsa vanþóknun sinni á ýmsum einstaklingum og fyrirtækjum, en Páll telur það brjóta í bága við siðareglur RÚV.

„Helgi Seljan, fréttamaður Ríkisútvarpsins, hefur undanfarið farið mikinn á samfélagsmiðlum þar sem hann lýsir vanþóknun sinni á nafngreindum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum. Í þessum skrifum virðist hann hafa kosið að líta alfarið fram hjá þeim siðareglum sem hann er bundinn af sem starfsmaður ríkisfjölmiðilsins.“

Þá minnist Páll á Facebook færslu Helga um nafna sinn Helga Vífill Júlíusson, blaðamann Markaðarins. Páli finnst Helgi hafa farið í manninn í stað boltans í þeim skrifum.

„Mér var bent á færslu sem Helgi skrifaði á Facebook miðvikudaginn 27. maí um Helga Vífil Júlíusson, blaðamann Markaðarins á Fréttablaðinu, sem var bæði ósvífin og rætin. Tilefni skrifanna var pistill Helga Vífils þar sem hann fjallaði um breytt eignarhald á Samherja hf. á öðrum nótum en þau æsifrétta- og reiðiskrif sem birst hafa í fjölmiðlum síðustu daga. Í stað þess að svara Helga Vífli með rökum fór Helgi Seljan í beint í manninn, rifjaði upp mál föður Helga Vífils sem var nýverið sakfelldur í sakamáli í Landsrétti, og réðst þannig ósmekklega að kollega sínum á öðrum fjölmiðli og fjölskyldu hans. Erfitt er að sjá hvernig mál föður Helga Vífils tengist pistlaskrifum sonarins og lesendur geta sjálfir dæmt um hversu smekklegt það er að blanda þessu tvennu saman.“

Páll ræðir vinnureglur RÚV og og vill meina að þær virðist ekki eiga við um Helga sem hann kallar ritsóða og ásakar hann um ítrekaðar árásir.

„Í starfi sínu sem fréttamaður er Helgi Seljan ekki aðeins bundinn af vinnureglum fréttastofu Ríkisútvarpsins, sem fjalla um það hvernig fréttamenn eigi að bera sig að í starfi, heldur er hann einnig bundin af siðareglum Ríkisútvarpsins, eins og allir aðrir starfsmenn stofnunarinnar. Í 2. gr. umræddra siðareglna segir: „Starfsfólk rýrir ekki trúverðugleika Ríkisútvarpsins með ámælisverðri framkomu, skeytingarleysi um lög eða virðingarleysi við mannhelgi og mannréttindi.“ Í 3. gr. reglnanna kemur svo skýrt fram að starfsfólk RÚV taki ekki opinberlega afstöðu í umræðu um umdeild mál. Þar segir: „Starfsfólk, sem sinnir umfjöllun um fréttir, fréttatengt efni og dagskrárgerð tekur ekki opinberlega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélagsumræðunni, þ. á m. á samfélagsmiðlum.“

Þessi einföldu fyrirmæli virðast ekki gilda um ritsóðann Helga Seljan. Því hann ræðst ítrekað að fólki og fyrirtækjum, sendir mönnum tóninn og tekur afstöðu í pólitískt viðkvæmum málum á samfélagsmiðlum. Þetta hefur hann gert að því er virðist án nokkurra athugasemda frá yfirmönnum sínum hjá Ríkisútvarpinu. Það virðist ekki skipta Stefán Eiríksson, útvarpsstjóra, nokkru máli að einn af þekktustu starfsmönnum stofnunarinnar þverbrjóti ítrekað siðareglur hennar á opinberum vettvangi.“

Að lokum spyr Páll sig hversu lengi meint framkoma Helga muni halda áfram og vitnar í pistil Andrésar Magnússonar hjá Viðskiptablaðinu.

„Helgi Seljan hefur áður sætt aðfinnslum opinberlega fyrir framgöngu sína á Facebook og Twitter. Hér má nefna pistil Andrésar Magnússonar, fjölmiðlarýnis Viðskiptablaðsins, sem birtist í vefútgáfu miðilsins hinn 12. janúar síðastliðinn. Þar voru færð rök fyrir því að Helgi hefði brotið siðareglurnar með skrifum sínum. „Það getur ekki hafa farið fram hjá yfirstjórn RÚV ohf., hvorki stjórn né æðstu yfirmönnum í Efstaleiti. Samt viðgengst það,“ skrifaði fjölmiðlarýnirinn. Og brotin viðgangast enn. Spurningin er bara, hversu lengi?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn