fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Bjössi í World Class segir upp 90 manns – „Það er gríðarlega erfitt að vera í þessari stöðu“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 29. desember 2020 14:41

Björn Leifsson. Fréttablaðið/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkamsræktarstöðin World Class hefur sagt upp 90 starfsmönnum en uppsagnirnar taka gildi um áramótin. Einungis hlutastarfsmenn misstu vinnuna en fólkið gegndi ýmsum stöðum innan fyrirtækisins. RÚV greindi frá uppsögnunum.

Björn Leifsson, eigandi og framkvæmdastjóri World Class, ræddi við RÚV um uppsagnirnar. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem mikill fjöldi starfsmanna World Class missir vinnuna en 50 manns var sagt upp í nóvember. „Núna þurftum við að segja upp öllum sem voru í starfshlutfalli undir 70%, sem  hlutabótaleið nær ekki yfir,“ segir Björn í samtali við RÚV. World Class hefur nú sagt upp tæplega helmingi starfsmanna fyrirtækisins.

Samkvæmt Birni hefur World Class tapað háum fjárhæðum vegna kórónuveirunnar. Björn segir fyrirtækið hafa orðið af 1,3 milljarði af tekjum á þessu ári. Vegna tapsins er því ekki hægt að gera mikið annað en að segja upp fólki. Aðallega voru það starfsmenn í afgreiðslu og barnagæslu sem misstu vinnuna að þessu sinni.

Björn segir í samtali við RÚV að það sé líklegt að starfsmennirnir sem voru reknir verði ráðnir aftur, það er að segja ef líkamsræktarstöðvar fá að opna aftur. „En ég sé ekki að það verði á næstunni. Eins og ég hef sagt áður þá  finnst mér þetta vera fáránleg mismunun, að það megi vera íþróttir allsstaðar og sundlaugar opnar – en líkamsræktarstöðvar megi ekki vera opnar. Við getum verið með grímuskyldu, við getum passað bæði sóttvarnir og fjarlægðarmörk. Það er gríðarlega erfitt að vera í þessari stöðu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið: Landsréttur sakfelldi konuna sem blekkti Hjörleif

Gufunesmálið: Landsréttur sakfelldi konuna sem blekkti Hjörleif
Fréttir
Í gær

Sakborningur í einu frægasta heimilisofbeldismáli seinni ára afplánar utan fangelsis – Bráðaaðgerð og tveggja mánaða gjörgæsludvöl

Sakborningur í einu frægasta heimilisofbeldismáli seinni ára afplánar utan fangelsis – Bráðaaðgerð og tveggja mánaða gjörgæsludvöl
Fréttir
Í gær

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara
Fréttir
Í gær

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga