fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Jón Gnarr prófaði heróín og krakk í utanlandsferð: „Um leið og ljósin slokknuðu fóru kakkalakkarnir á stjá“

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 6. janúar 2020 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn, grínistinn og fyrrverandi borgarstjórinn, Jón Gnarr og handritshöfundurinn og grínistinn, Sigurjón Kjartansson, fjölluðu um ferðalag sitt til New York-borgar í útvarpsþættinum Tvíhöfða sem var á Rás 2 í gærkvöldi. Ef að marka má sögu þeirra þá hefur ferðalag þetta líklega átt sér stað í kringum árið 1990.

Jón og Sigurjón lýsa gististað sínum í borginni sem aldrei sefur, á ansi ófrýnilegan hátt. Þar eiga kakkalakkar og flær að hafa verið alls ráðandi, á meðan þeir félagar sváfu á dýnum á gólfinu í svokölluðum „skordýraviðbjóði“.

„Við lágum þarna á gólfinu í einhverju vöruhúsi og um leið og ljósin slokknuðu fóru kakkalakkarnir á stjá,“

Fíkniefnaneysla í fíkniefnahöfuðborginni

Sagan snerist aðallega um Jón, en hann á að hafa neytt hættulegra fíkniefna í ferðinni og það í miklu magni. Fíkniefnin sem Jón á að hafa neytt teljast öll sterk og hættuleg.

Sigurjón lýsti New York sem fíkniefnahöfuðborg heimsins á þessum tíma og Jón tók undir það og bætti við að staðurinn sem þeir hafi verið á, Lower East Side, hafi verið miðstöð fíkniefna í fíkniefnaborginni. Jafnframt sagði Jón að hann hafi tekið fíkniefnunum opnum örmum.

„Ég ætla bara að leggja spilin á borðið. Það var verið að bjóða mér örvandi efni, bæði kókaín og amfetamín og ég þáði það og sagði „já þakka þér kærlega fyrir, ég þigg þetta“.“

Jón segist hafa hitt nágranna sem hafi verið tilbúinn að gefa honum krakk, sem Jón þáði og mætti því í krakk-hitting.

„Það eru allir að tala um krakk og mig langar svo að prófa það.“

„Þarna reykti ég krakk og það var virkilega hressandi fannst mér.“

Tók heróín vegna ofskynjana

Þegar að Jón sneri til baka úr krakk-teitinu aftur á gististaðinn segist hann hafa átt erfitt með svefn, bæði vegna kakkalakkanna og líka vegna ofskynjana. Hann segist sífellt heyrt einhvern kalla „Jón“, en þegar hann hafi svarað hafi ekkert verið til staðar. Jón segist þá hafa ákveðið að vekja húsráðanda, sem hafi gefið honum heróín til að sofna. Þegar hingað var komið til sögu spurði Sigurjón hvort það hefði gerst í alvöru og Jón svaraði játandi.

„Það slokknaði á mér öllum, en ég var samt alveg vakandi í höfðinu. Mér leið betur ég var slakur, en mig langaði ekki að sofa heldur langaði mig að lesa bók eða spjalla eða spila og eitthvað svoleiðis.“

Í heróín-vímu segist Jón hafa spjallað við þennan húsráðanda alla nóttina en síðar áttað sig á því að hann væri löngu farinn. Einnig á Jón að hafa hringt í móður sína sem varð ósátt þegar hún áttaði sig á því að ekki væri allt með felldu.

„Mamma varð alveg fjúkandi ill og öskraði á mig,“

Svaf ekkert í marga sólarhringa

Þrátt fyrir heróínið tókst Jóni ekkert að sofna. Þá hafi hann og Sigurjón farið til vinkonu þeirra sem hélt því fram að eina ráðið væri að gefa Jóni speedball, sem er blanda af örvandi efni líkt og kókaíni og ópíóda eins og til dæmis heróíni. Slík blanda er virkilega hættuleg.

Speedball hjálpaði Jóni heldur ekki að sofna og í kjölfarið var hann dreginn í flug heim til Íslands. Jón segist síðan hafa spurt flugfreyjuna hverjar væru aukaverkanir af krakkneyslu. Að fluginu loknu hafi tollgæsla og lögregla tekið á móti honum til að athuga hvort hann hafi smyglað efnum til landsins, svo hafi ekki verið. Öll Þessi neysla Jóns á að hafa orðið til þess að hann svaf ekkert í heila þrjá sólarhringa.

Jón segir að hann hafi ekki neytt ólöglegra fíkniefna síðan. Hlusta má á þáttinn í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“