Myllan í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur innkallað Bónus Kjarnabrauð.
Hluti annarrar brauðframleiðslu fór óvart í poka merkta Bónus Kjarnabrauði og inniheldur brauðið ofnæmis- eða óþolsvaldinn lúpínu sem sem er ekki tilgreint sem innihaldsefni í Bónus Kjarnabrauði.
Brauðið er merkt best fyrir dagsetningunni 15. 09. 2020
Samkvæmt tilkynningu er varan skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir lúpínu og afurðum hennar. Neytendur sem hins vegar eru viðkvæmir fyrir lúpínu eða lúpínuafurðum eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þá verslun þar sem hún var keypt.