Kári Stefánsson er ómyrkur í máli í viðtali við Fréttablaðið og segir að COVID-plágan muni fylgja heiminum næstu mánuði. Hann segir þó eitt vera jákvætt við COVID. „Númer eitt, börn og unglingar smitast síður en fullorðnir. Ef þau smitast þá veikjast þau jafnframt minna.“
Kári segir í samtali við Fréttablaðið að 700 börn hafa verið skimuð hjá Íslenskri erfðagreiningu og Landspítalanum. Sárafá hafi verið smituð. „Í okkar þýði fundum við ekkert barn undir 10 ára aldri og í þýði Landspítalans fundust þrjú. Þannig að það voru þrjú af 700 undir 10 ára sem sýktust og sumir þessara krakka eiga báða foreldra sýkta.
„Þannig að náttúran hefur einhvern veginn hannað þessa skepnu þannig að hún hlífi börnunum okkar, sem mér finnst mjög elegant og flott. Við erum greinilega að takast á við veiru sem er einhvers konar heiðursveira,“ segir Kári.