fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Útigangsmenn þreyttir á hlutskipti sínu: „Ég er rosalega veikur maður, ég vil að Íslendingar hjálpi okkur fokking núna!“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 28. júní 2019 12:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagarnir Davíð Ingi Þorsteinsson og Steinar Stefánsson hafa verið heimilislausir í fjöldamörg ár og hafa ítrekað þurft að leita á náðir Gistiskýlisins á Lindargötu um næturgistingu. Þeir eru tveir af sístækkandi hópi útigangsmanna í Reykjavík, hópi sem mörg okkar vilja ekki vita af en þurfa þó á aðstoð samfélagsins að halda svo þeir og félagar þeirra geti öðlast von um mannsæmandi líf.

Blaðamaður og ljósmyndari DV fóru og hittu Davíð Inga og Steinar fyrir framan Gistiskýlið. Auk þeirra voru þar nokkrir aðrir félagar þeirra í mjög misjöfnu ástandi og einn þeirra skólaus og í hjólastól. Menn sem væru betur komnir í húsnæði, meðferð eða annarri umsjón, en á götunni.

Mynd: Eyþór Árnason

„Við erum með hústökuhús og ég sef þar frekar en hér. Það er ekki af því að þetta sé svo slæmur staður heldur af því ég vil ekki vera hérna,“ segir Davíð Ingi, en bætir við að hann hafi ekki fengið inni í Gistiskýlinu í tvo mánuði vegna hegðunarvanda.

Þeir eru sammála um að starfsmenn séu góðir og vilji allt fyrir skjólstæðinga sína gera, eða það sem þeim er heimilt að gera samkvæmt lögum og reglum. „Þetta er yndislegt fólk, þau gera allt fyrir okkur,“ segir Steinar. „Þetta er erfitt fyrir starfsfólkið sem er að gera sitt besta, þau fá reglur sem þau vinna eftir, það er líka mannekla hérna. Þeir eru að reyna að gera sitt besta og eru allir af vilja gerðir en starfsreglurnar eru þannig að þeir mega ekki hjálpa okkur meira,“ segir Davíð.

Steinar hefur verið á götunni í tólf ár. Mynd: Eyþór Árnason

Á götunni í 20 ár

Davíð er búinn að vera á götunni síðan árið 1998 og segist orðinn þreyttur á sínum aðstæðum og vilji komast í húsnæði. „Mig langar bara í húsnæði og vera ég. Ég er 43 ára Vestmannaeyingur, missti móður mína og allt mitt líf og átti erfitt.“

Davíð kom ásamt fleirum fram í viðtali í Ísland í dag í júní árið 2018. „Tveimur dögum eftir að ég fór í sjónvarpið var ég handtekinn og sendur á Hólmsheiði, þá talaði einhver ráðherrann um að það þyrfti að gera eitthvað. Það voru keyptir 22 skúrar, heyrðu, það hafa tveir skúrar verið lausir allan tímann úti á Granda. Við þurfum að redda þessu. Það er komið heilt ár og ég er ennþá hérna. Ég hef verið stóran hluta af ævi minni í fangelsi fyrir að vera fullur. Veistu hvað ég er búinn að vera í fangelsi lengi? Bara bull, sjö og hálft ár í fangelsi.“

Í sama viðtali í Ísland í dag sagði Þór Gíslason: „Ef einstaklingur hefur engan stað til að fara á nema götuna eftir meðferð eða fangelsisvist má segja að sú fjárfesting sé unnin fyrir gýg sem búið er að setja í varðandi meðferðir.“ Þór hefur verið forstöðumaður í Gistiskýlinu síðan haustið 2017, en hefur áður unnið með utangarðsfólki á einn eða annan hátt í áraraðir.

Engin þjónusta er veitt í Gistiskýlinu milli kl. 10 og 16. Karlmennirnir mæta í röðina fyrir utan kl. 15 og gildir reglan, fyrstir koma fyrstir fá, en 29 manns geta gist þar í einu. „Við búum í tjaldi og skúrum sem við brjótumst inn í, þegar ekki er pláss hér.“

Lokað Davíð og Steinar stilla sér upp við inngang Gistiskýlisins. Mynd: Eyþór Árnason

Orðnir þreyttir á hlutskipti sínu

„Það eru allir veikir hérna,“ segir Davíð Ingi og benda þeir Steinar á einn félaga sinn, ungan mann, og segja hann hafa beðið um að fara inn til að sprauta sig en fékk ekki. Notaði hann því poll á götunni til að hreinsa nálina áður en hann sprautaði sig. „Ég hef misst tvo vini mína á síðustu þremur mánuðum. Veistu hvað ég er þreyttur? Ég er bara búinn á því og ég græt af því ég var að missa besta vin minn og fyrir viku missti ég annan vin minn úr heilablóðfalli.“

„Ég vil að fólk hjálpi þessum manni hérna. Ég vil bara húsnæði fyrir þennan mann hérna, húsnæði fyrir þennan og húsnæði fyrir okkur alla,“ segir Davíð og bendir í kringum sig. „Hvað er ég að gera hérna? 20 ár á götunni! Húsnæði er fokking málið og ef að Íslendingar geta ekki reddað því núna skilurðu, þá kveiki ég í fokking Alþingishúsinu og sit inni fyrir það glaður,“ segir Davíð reiðum rómi.

„Ég er ekki reiður við þig, ég er bara brjálaður,“ bætir hann við við blaðamann DV. „Má ég segja þér eitt, ég er öryrki og ég var settur á örorku út af óeðlilegum og hættulegum lifnaðarháttum. Ég var á féló, svo var ég á örorku, síðan lenti ég í slysi og er lappalaus, ég er búinn að vera jönker í 27 eða 28 ár, ég er hættur því núna, eða þú veist.

Við erum ákveðið fólk sem erum veik, við drekkum og dópum, en á Íslandi þá megum við bara fokking gera það löglega. Þó svo við drekkum, ríkið leyfir okkur að drekka, við megum fara í Ríkið og kaupa áfengi. Síðan fáum við sekt fyrir að drekka á almannafæri og förum svo í fangelsi fyrir það.

Ég er rosalega veikur maður, ég vil að Íslendingar hjálpi okkur fokking núna!“

Mynd: Eyþór Árnason

Fyrr í mánuðinum birtu Davíð og Steinar ákall á Facebook þar sem þeir óskuðu eftir fötum á sig og félaga sína og skákborði. Hvernig voru viðtökurnar? „Það er búið að rigna inn svörtum ruslapokum, fólk er búið að taka vel í þetta,“ svarar Steinar brosandi. „Það eru komin sex taflborð,“ bætir Davíð við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi