Leikmaður í körfuboltaliði Þórs á Akureyri hefur verið kærður og er grunaður um kynferðisbrot. Er málið nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Akureyri. Leikmaðurinn hefur leikið stórt hlutverk fyrir körfuboltafélagið undanfarin ár.
Samkvæmt heimildum DV hefur leikmanninum verið vísað úr liðinu og mun ekki spila aftur fyrir Þór. Stjórnin taldi tilefni væri til að taka af málinu af festu og vísaði leikmanninum úr félaginu.
Lið Þórs sigraði Vestra á heimavelli á föstudag, en þann dag lauk deildarkeppni 1. deildar karla í körfubolta lauk. Eftir leikinn fögnuðu leikmenn því að hafa orðið deildarmeistarar og tryggt sér sæti í úrvalsdeild. Umræddur leikmaður var þó ekki í þeirra hópi og vakti það athygli margra áhorfenda.