Skúli Gunnar Sigfússon, oftast kenndur við Subway hefur verið kærður fyrir að millifæra fjármuni af bankareikningum félagsins EK1923 ehf. áður en félagið varð gjaldþrota. Embætti héraðssaksóknara er stefnandi í málinu, en ásamt Skúla eru Guðmundur Hjaltason fyrrv. framkvæmdastjóri Sjóstjörnunnar og Guðmundur Sigurðsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Stjörnunnar kærðir. Mbl greinir frá þessu.
Ákæran varðar tvær millifærslur frá EK1923 til annarsvegar Sjöstjörnunnar uppá 21,3 milljón kr. og hinsvegar Stjörnunnar uppá 24.6 milljón krónur.
Einnig er ákært fyrir greiðslur frá EK1923 til tveggja erlendra birgja, en kröfurnar voru gjaldfallnar.
Undanfarin misseri hefur andað köldu á milli Skúla og skiptastjóra EK1923, Sveins Andra Sveinssonar. Auk þess hefur hann átt í erjum við Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill.