fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Björn býr við einangrun í þjónustuíbúð aldraðra

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 27. júlí 2019 09:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Birgir Berthelsen fylltist mikilli tilhlökkun í vor þegar hann fékk úthlutað íbúð að Furugerði 1 í Reykjavík eftir að hafa beðið lengi eftir þjónustuíbúð. Að sögn systur hans, Ragnheiðar, hlakkaði hann mikið til að kynnast öðrum eldri borgurum og rjúfa félagslega einangrun sem hann hafði búið lengi við á heimili sínu. Annað kom þó á daginn og dvelur Björn alla daga einn og einmana í íbúð sinni á meðan hann bíður í marga mánuði eftir hjólastól við hæfi.

Blaðamaður og ljósmyndari DV bönkuðu upp á hjá Birni sólríkan miðvikudag í júlí. Íbúðin er upp á níundu og efstu hæð, innst á ganginum, björt og rúmgóð, og samanstendur af stofu, svefnherbergi, eldhúsi og baðherbergi.

„Ég flutti hingað 4. maí,“ segir Björn, sem situr á skrifborðsstól, sem hann notar til að ýta sér á um íbúðina. Út á svalirnar kemst hann þó ekki, þar sem hann treystir sér ekki til að ýta stólnum yfir þröskuldinn út á svalirnar. Björn fer því líka á mis við góða veðrið og stórkostlegt útsýni af svölunum, meðan hann er innilokaður í íbúð sinni.

Einn í íbúð sinni Íbúð Björns er björt og rúmgóð. Mynd: Eyþór Árnason

Björn bjó áður í eigin íbúð í blokk í Þangbakka í Breiðholti, en sú íbúð hentaði honum ekki lengur vegna veikinda auk þess sem Björn var farinn að þurfa aðstoð við daglegar athafnir og farinn að einangrast þar. Þar komst hann þó út úr húsi og ferðaðist um á rafskutlu í nálægan  þjónustukjarna, en gat þó ekki farið á henni inn í verslanir. „Þegar ég flutti hingað var sagt við mig að ég gæti ekki notað hana hér, hvorki inni né geymt hana inni. Bæði eru gangarnir hérna mjóir og ekki hægt að mæta hjólastól og svo er hvergi hægt að geyma hana nema inni í íbúðinni, þar sem gangarnir eiga að vera auðir. Þannig að það var ekkert hægt að gera nema losa sig við skutluna.“

Rafskutlan Björn á rafskutlunni heima við Þangbakka árið 2017. Mynd: Facebook

Tvisvar farið úr íbúðinni á tæpum þremur mánuðum

Björn leigir íbúðina í Furugerði og innifalið í leigunni er hiti og rafmagn. Mat greiðir hann fyrir sérstaklega, um 700 krónur máltíðina. Aðspurður hvort eitthvað fleira sé innifalið í leigunni svarar hann: „Það er náttúrulega félagslíf, en ég bara veit ekki hvað.“

Á þeim tæpu þremur mánuðum sem Björn hefur búið í Furugerði hefur hann tvisvar farið niður á fyrstu hæð hússins, þar sem er matsalur, félagsstarf og aðrir íbúar hússins sem hægt er að hitta og tala við um daginn og veginn.

„Ég fór fyrsta sunnudaginn eftir að ég flutti, þá fór dóttir mín niður með mig til að sjá hvernig væri. Þá var vöfflukaffi niðri og við keyptum okkur vöfflur. Síðan fór ég í annað sinn þegar var vorhátíð og grillað, þá kom dóttir mín og keyrði mig niður á þessum,“ segir hann og klappar á skrifborðsstólinn.

Björn er 69 ára, fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og var sjómaður frá unga aldri. „Um 16–17 ára fór maður að fara á bátana og kom heim bara milli vertíða. Svo fór ég alveg að heiman 19 ára til Ólafsvíkur, kynntist konunni minni og við fórum að basla þar.“ Árið 2000 hætti Björn til sjós, 50 ára gamall, en þá var hann kominn á sjó í Noregi.

„Ég hætti á sjónum því ég var kominn með slitgigt í hnén, var alltaf kvalinn í hnjánum,“ segir Björn og bætir við að hann hafi aldrei farið í aðgerð vegna þess. „Kominn í land fór ég að keyra sementsflutningabíla um allt land og það var ekki það gáfulegasta fyrir mann sem verkjar í hnén, að sitja á rassinum allan daginn. Þá fór ég að þyngjast meira, en ég byrjaði að þyngjast þegar við vorum á flæmska hattinum, þar vorum við með listakokk og lítil vinna.“

Björn á þrjú uppkomin börn sem heimsækja föður sinn eins og þau geta, einu heimsóknirnar þess utan eru frá starfsfólki sem færir honum mat tvisvar á dag: „Svo kíkja þær inn um þrjúleytið. Allt starfsfólkið sem ég hef hitt er mjög elskulegt og allt af vilja gert.“ Einnig heimsækir einn íbúi hússins, fyrrverandi sjómaður eins og Björn, hann reglulega þar sem þeir ræða sjómennskuna og liðna tíð.

Fær ekki að njóta til fulls Öflugt félagsstarf er á fyrstu hæð hússins, sem Björn hefur enn ekki náð að vera hluti af. Mynd: Eyþór Árnason

Mánaðarbið lengist sífellt

Þegar Björn flutti í Furugerði var óskað eftir aðstoð iðjuþjálfa til að koma og sækja um hjólastól fyrir hann. Að sögn systur Björns kom iðjuþjálfinn tveimur vikum seinna, mældi hvernig hjólastól hann þyrfti og pantaði hann, biðin átti að vera mánuður þar sem stólinn yrði að panta að utan. Þrátt fyrir tillögu iðjuþjálfans neituðu sjúkratryggingarnar að greiða fyrir þann stól, þar sem hann væri of dýr og því þurfti að finna annan stól.

„Iðjuþjálfinn má ekki segja neitt nema það sem hann getur staðið við. En núna er búið að panta stól frá Svíþjóð,“ segir Björn og segist hafa spurt sölumanninn hvort hann myndi ekki bara skutla stólnum í flug næsta morgun. „Án ábyrgðar var sagt að stólinn kæmi í ágúst. Ég veit ekki af hverju þetta tekur svona langan tíma, sölumaðurinn sagði að það væri búið að panta hjólastól, svo þyrfti að breyta honum. Síðasti stóll var frá Öryggismiðstöðinni, það þurfti að breyta honum, svo þegar hann kom þá kostaði hann of mikið,“ segir Björn, og bætir við: „Þeir fara varla að væla yfir hálfri milljón,“ þegar blaðamaður spyr hvað slíkur stóll kosti. „Þetta ræksni kostaði um 100 þúsund krónur,“ segir hann og á við skrifborðsstólinn sem hann situr á: „Það er bremsa á honum svo hann skjótist ekki undan mér svo er hægt að hækka og lækka.“

Eftir heimsóknina til Björns fékk hann loksins tölvupóst, mánudaginn 22. júlí, um að sjúkratryggingar væru búnar að samþykkja stólinn, það ætti eftir að panta hann og honum tjáð að það gæti tekið nokkrar vikur. Biðin og félagsleg einangrun Björns lengist því bara enn frekar og segir hann að það sé ekki bætandi á þunglyndi sem hrjáir hann líka. „Það fór með hjónabandið.“

Þekkt slagorð Happdrættis DAS, sem er Dvalarheimili aldraðra sjómanna/Hrafnista, er: „Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld.“ Það slagorð er þó löngu búið að breytast í innihaldslausan frasa eins og mál Björns ber vitni um, þó að Furugerði 1 tilheyri ekki DAS, en þjónustuíbúðirnar eru á vegum Reykjavíkurborgar.

„Ég bara skil þetta ekki og það er eitt sem ég skil ekki. Sjálfsagt deyr fólk frá þessum stólum eins og öðru og hvað verður um þá? Af hverju finnst ekki stóll til að nota allavega til bráðabirgða. Ekki tekur fólk þessa stóla með sér í gröfina,“ segir Björn sem má bíða enn einhverja mánuði með að komast út fyrir íbúð sína, kynnast öðrum íbúum Furugerðis 1 og rjúfa félagslega einangrun sína.

Furugerði 1 Inngangurinn að þjónustuíbúðunum. Mynd: Eyþór Árnason

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu