Ökumaður bifreiðar sem lenti utan vegar og valt margar veltur á þjóðvegi 1 um Langadal í gærkvöldi var úrskurðaður látinn á vettvangi. Frá þessu greinir Lögreglan á Norðurlandi vestra í tilkynningu.
Tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan 22 í gærkvöldi og fór björgunarlið þegar á vettvang. Einn maður var í bílnum. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á staðnum.
„Ökumaðurinn er með erlent rikisfang. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Vegna vettvangsrannsókna verður þjóðvegur 1 lokaður í nokkurn tíma upp úr kl.10.00. Vegfarendum er bent á hjáleiðir um Svínvetningabraut og Skagastrandarveg og Þverárfjallsveg til Sauðárkróks,“ segir í tilkynningu lögreglu.