Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir ökumanni blárrar bifreiðar er ekið var á unga stúlku á Siglufirði þann 28.3.2019 um kl. 18:14 við stoppistöð skólabíla syðst í Snorragötu.
Þetta kemur fram í stöðufærslu lögreglunnar. „Upplýsingar um hver ökumaðurinn er liggja hins vegar ekki fyrir hjá lögreglu og er því óskað eftir því að viðkomandi hafi samband við lögreglu í síma 4442800,“ segir í færslunni.