fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fréttir

Reyndu að aðstoða konuna en urðu að loka hana inni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 14. apríl 2019 07:39

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dagbók lögreglunnar er sagt frá því að um hálftíuleytið í gærkvöld hafði lögreglan afskipti af konu í annarlegu ástandi í miðbænum. Reynt var að aðstoða konuna við að komast heim en vegna ástands síns var hún að lokum vistuð í fangageymslu lögreglunnar.

Um hálfeittleytið var maður í annarlegu ástandi handtekinn í miðbænum grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu. Meiðsli brotaþolans voru minniháttar.

Maður í hverfi 110 var handtekinn um tíuleytið í gærkvöld grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu. Ekki er vitað um meiðsli árásarþola.

Nokkuð var um ölvunarakstur og akstur undir áhrifum vímuefna. Þá var maður handtekinn grunaður um vörslu fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás á Litla-Hrauni

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás á Litla-Hrauni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ákærur yfirvofandi vegna netsölu áfengis

Ákærur yfirvofandi vegna netsölu áfengis
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fá ekki að skoða tæki manns sem grunaður er um kynferðisbrot gegn dóttur sinni – Segir viðkvæm gögn um stjórnmálaflokk leynast þar

Fá ekki að skoða tæki manns sem grunaður er um kynferðisbrot gegn dóttur sinni – Segir viðkvæm gögn um stjórnmálaflokk leynast þar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Skagfirðingar lýsa yfir verulegum áhyggjum vegna yfirvofandi breytinga á farsímakerfinu

Skagfirðingar lýsa yfir verulegum áhyggjum vegna yfirvofandi breytinga á farsímakerfinu