fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Gömul ummæli Jóns Péturs um einkunnakerfi rifjuð upp – Var ekki hrifinn af tölunum og fagnaði nýju kerfi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 29. nóvember 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri Réttarholtsskóla, fer mikinn í hressilegu TikTok-myndbandi þar sem hann hæðist að núverandi einkunnakerfi í grunnskólum, sem hann segir vera óskiljanlegt. Hann segist vilja fá talnakerfið aftur.

„Ég er búinn að vera skólastjóri og kennari í 30 ár. Það skilur enginn þetta einkunnakerfi. Við verðum að negla þessu bókstafakerfi á haugana. Við í Sjálfstæðisflokknum viljum talnakerfið. Við viljum tölurnar aftur,“ er á meðal þess sem Jón segir í myndbandinu:

@jon.petur.zimsen

Tölur eða bókstafir?

♬ Street Confidence – DHDMusic

Valgarður Lyngdal Jónsson kennari rifjar hins vegar upp á Facebook-síðu sinni að Jón hafi farið jákvæðum orðum um nýtt einkunnakerfi í kynningarriti árið 2016 og lýst talnakerfinu sem takmörkuðum mælikvarða. Birtir Valgarður skjáskot úr viðtalinu við Jón og bendir á að þáverandi menntamálaráðherra hafi verið Sjálfstæðismaðurinn Illugi Gunnarsson.

Jón segir meðal annars í viðtalinu:

„Það sem skiptir mig mestu máli er það sem liggur að baki kvarðanum. Breytingin felst í því að það er verið að meta hæfni, hvernig nemandinn beitir þekkingu, ekki hversu góður hann er að þylja upp staðreyndir og muna utanbókar. Það er þetta sem ég er ánægður með.“

„Ef allir fara eftir þessu og skoða hvaða texti liggur á bak við hvern bókstaf þá held ég að matið verið miklu samræmdara en það hefur verið þar sem samræmdur texti liggur til grundvallar í hverri grein. Í gamla kerfinu, þegar skólarnir gáfu einkunnir í tölum, gat hvað sem er legið að baki hverri einkunn. Þá var ekki samræmi í því hvort inni í einkunn væri námsefni frá síðustu þremur árum eða tveimur mánuðum, ritgerð eða ekki ritgerð, ástundun og iðni o.s.frv.“

Hefur talað fyrir breytingu í fimm ár

Í stuttu spjalli við DV bendir Jón Pétur á að hann hafi talað í fimm ár um að skipta út kerfinu. „Árum saman hefur verið reynt að berja þetta inn en ekkert gengið. Fáir þekkja þetta betur en ég og það þarf að horfast í augu við það sem gengur ekki upp. Hef talað um í a.m.k. fimm ár að skipta þessu út.“

Aðspurður hvort innleiðing kerfisins hafi þá ekki gengið eftir eins og hann sjá fyrir sér ári 2016 segir Jón Pétur:

„Í raun virkar kerfið ekki. Ekkert samræmi er í kerfinu þrátt fyrir tilraunir til þess. Nemendur og foreldrar skilja illa endurgjöfina úr því. Kennarar eyða alltof miklum tíma í það án þess að það skili einhverju.“

Fréttinni hefur verið breytt. 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ljósi varpað á það sem gerðist í jólaboði Conan O‘Brien – Nokkrum tímum síðar átti harmleikurinn sér stað

Ljósi varpað á það sem gerðist í jólaboði Conan O‘Brien – Nokkrum tímum síðar átti harmleikurinn sér stað
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Súlunesmálið: Dómur er fallinn yfir Margréti Löf fyrir morð og stórfellda líkamsárás

Súlunesmálið: Dómur er fallinn yfir Margréti Löf fyrir morð og stórfellda líkamsárás
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“
Fréttir
Í gær

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“
Fréttir
Í gær

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“
Fréttir
Í gær

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“