fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Leggur til nýtt hlutverk fyrir RÚV – „Gæti verið nokkurs konar móðurskip“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyrún Magnúsdóttir ein af forvígismönnum fjölmiðilisins Gímaldið og fyrrum starfsmaður RÚV leggur til að hennar gamli vinnustaður fái nýtt hlutverk. Er það hugmynd Eyrúnar að RÚV verði í auknum mæli stuðnings- og þjónustuaðili fyir aðra fjölmiðla á Íslandi. Hún vill þó ekki að RÚV hætti alfarið að vinna eigið efni en noti styrk sinn í auknum mæli til aðstoða aðra fjölmiðla við efnisöflun og sköpun en verði síður í beinni samkeppni við þá.

Eyrún fjallar um þetta í opnum pistli á Gímaldinu. Mikið hefur verið rætt um erfiðleika einkarekinna fjölmiðla á Íslandi en Eyrún segist ekki sammála því sem oft heyrist í umræðunni að til að styrkja þá þurfi að veikja RÚV:

„Í litlu vistkerfi eins og íslenskum fjölmiðlamarkaði stenst þessi aðferðafræði illa. Þegar heildarkerfið er veikburða, veikjast allir – líka sá sem á að standa eftir sem sigurvegari. Stefnumótun sem byggir á því að minnka RÚV tekur ekki mið af því sem raunverulega skapar verðmæti í fjölmiðlum: traust gögn, tækni, aðgengi að upplýsingum og sérþekking.“

Eyrún segir að horfa ætti á RÚV sem burðarstoð fyrir allt vistkerfi fjölmiðla á Íslandi. Slík umgjörð muni ekki rýra hlutverk RÚV heldur styrkja það og gera öðrum miðlum kleift að þrífast á grundvelli samvinnu í stað samkeppni um takmörkuð gæði.

Móðir

Eyrún segir að RÚV hafi of lengi starfað nákvæmlega eins og aðrir fjölmiðlar með því að keppa við þá um auglýsingar og vinna efni sem byggt sé á grunnvinnu þeirra. Í stað þess að RÚV reyni að líkja eftir öðrum miðlum í efnistökum og framsetningu, eða endurgera efni sem aðrir hafi lagt vinnu í, mætti skilgreina RÚV sem regnhlíf sem styðji og verndi fjölmiðlaumhverfið í landinu. Slíkt krefjist ekki meira fjármagns heldur nýrra viðhorfa. RÚV þurfi áfram að fá að vinna að eigin hugmyndum og efni en geti haft mun stærra hlutverki að gegna út á við gagnvart öðrum fjölmiðlum.

Eyrún leggut til leiðir til að ná þessu markmiði:

„RÚV gæti verið nokkurs konar móðurskip sem hefði vel skilgreindar skyldur, til dæmis um gagnasöfnun, sem aðrir hafa litla burði til, deila þeim gagnasöfnum með öðrum, veita raunverulegan og óheftan aðgang að myndefni og öllu eldra efni úr sínu safni, vera leiðandi í tækni og byggja upp sameiginlega innviði sem aðrir miðlar geti nýtt. Þá er einnig mikilvægt að ræða hvernig RÚV getur lyft efni annarra og vísað til þess af virðingu en reyni ekki að endurskapa efni og hugmyndir sem aðrir fjölmiðlar og blaðamenn hafa lagt vinnu og tíma í.“

Eyrún leggur til að RÚV deili auglýsingatekjum sínum með öðrum fjölmiðlum. Lausnin á vanda einkarekinna fjölmiðla sé ekki að veikja RÚV. Byggja þurfi upp sameiginlega inviði þar sem RÚV verði hryggjarstykkið:

„RÚV þarf að vera sterkt og burðugt, ekki veikt og léttvægt. En hlutverk þess þarf að færast frá samkeppni yfir í þjónustu. Sú nálgun þjónar best hagsmunum lýðræðisins.“

Pistil Eyrúnar í heild sinni er hægt að lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ljósi varpað á það sem gerðist í jólaboði Conan O‘Brien – Nokkrum tímum síðar átti harmleikurinn sér stað

Ljósi varpað á það sem gerðist í jólaboði Conan O‘Brien – Nokkrum tímum síðar átti harmleikurinn sér stað
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Súlunesmálið: Dómur er fallinn yfir Margréti Löf fyrir morð og stórfellda líkamsárás

Súlunesmálið: Dómur er fallinn yfir Margréti Löf fyrir morð og stórfellda líkamsárás
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“
Fréttir
Í gær

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“
Fréttir
Í gær

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“
Fréttir
Í gær

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“