fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Frakkar hunsuðu íslenska innheimtumenn

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 30. nóvember 2025 07:30

Menntasjóður er til húsa í Borgartúni 21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frönsk yfirvöld virtu íslenska innheimtumenn ekki viðlits ef marka má stefnu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í vikunni. Menntasjóður stefndi þá íslenskri konu sem búsett er í Frakklandi til innheimtu námslána sem fallin voru á gjalddaga.

Ekki hafði tekist að birta konunni stefnuna þrátt en í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu er innheimtusagan rakin.

Þar kemur fram að  fyrsti hafi verið leitað til samstarfsaðila í Frakklandi til að fá heimilisfang skuldarans staðfest en fyrir lá heimilisfang sem viðkomandi hafði gefið út. Reyndist konan enn búa á sama stað.

Þá var gefin út stefna, í febrúar 2024, sem var svo í kjölfarið þýdd yfir á frönsku af löggiltum þýðanda og beiðni um birtingu send til Sýslumannsins Suðurnesjum sem var falið að koma því á framfæri við frönsk yfirvöld að konunni yrði birt stefnan.

Þingfesta átti málið í nóvember 2024 en þar sem engin svör bárust frá Frakklandi því var aftur farið í að skoða hvort heimili konunnar væri rétt. Þremur mánuðum síðar virðist liggja fyrir að heimilisfangið væri enn hið sama og þá var ákveðið að gefa út nýja stefnu í byrjun mars 2025.

Sú stefna var svo líkt og hin fyrri þýdd af löggiltum þýðanda yfir á frönsku. Ekki fylgir þó sögunni hvort skuldheimtumennirnir íslensku hafi fengið afslátt í ljósi þess að svipað orðuð stefna hafði nýlega verið snarað yfir á frönsku.

Hin tvíþýdda stefna var svo send, líkt og áður, til Sýslumannsins á Suðurnesjum og óskað eftir birtingu í Frakklandi og var markmið að þingfesta stefnuna í lok október 2025.

Aftur ollu Frakkar hins vegar vonbrigðum því samkvæmt tölvupósti frá sýslumanni til innheimtumanns Menntasjóðs bárust engin viðbrögð frá Frakklandi varðandi birtingu stefnunnar.

Í ljósi þess að Frakkar höfðu hunsað með öllu að aðstoða við að konunni yrði birt stefnan þá var ákveðið að birta hana í heild sinni í Lögbirtingablaðinu þar sem skorað er á íslensku konuna að mæta fyrir dóm að morgni dags þann 20. janúar 2026 og standa fyrir máli sínu.

Ólíklegt verður að teljast að stefnan komist til skila.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ljósi varpað á það sem gerðist í jólaboði Conan O‘Brien – Nokkrum tímum síðar átti harmleikurinn sér stað

Ljósi varpað á það sem gerðist í jólaboði Conan O‘Brien – Nokkrum tímum síðar átti harmleikurinn sér stað
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Súlunesmálið: Dómur er fallinn yfir Margréti Löf fyrir morð og stórfellda líkamsárás

Súlunesmálið: Dómur er fallinn yfir Margréti Löf fyrir morð og stórfellda líkamsárás
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“

„Slæmt að sjá unga vinsæla tónlistarkonu nota reykingar sem sjálfsagðan hlut í sínu efni“
Fréttir
Í gær

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“

Lögreglan neyddi Simon til að gefa falskan vitnisburð: „Þremur vélbyssum var miðað á höfuðið á mér“
Fréttir
Í gær

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“

Sólveig Anna með óvænta skoðun á styttingu atvinnuleysisbótatíma – „Nú verð ég sennilega drepin“
Fréttir
Í gær

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“

Líflegar umræður eftir að Stefán Máni sagði það pólitískan réttrúnað að segja „gleðilega hátíð“ – „Þetta er innflutt tuð“