Gengi krónunnar hefur veikst í morgun og og má ætla að óvissan í málum Wow air hafi þar áhrif. Síðdegis á föstudag var kaupgengi dollars skráð á 119,60 kr hjá Arion banka. Fyrir stundu var gengið 120,23 kr. Þá var kaupgengi evru skráð á 134,89 kr á föstudag, en var skráð 136,09 kr í morgun.
Búast má við talsverðum gengissveiflum á næstunni. Þar spila inn í óvissa í efnahagsmálum, yfirvofandi verkföll og staða Wow air. Seðlabankinn hefur þegar að minnsta kosti einu sinni stigið inn í gengisþróun að undanförnu, til að freista þess að halda jafnvægi á genginu og er ljóst að bankinn mun þurfa að hafa góðar gætur á þróun næstu daga og vikna.