fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Sauð upp úr við Alþingishúsið í gær – Sjáðu myndbandið !

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 21. mars 2019 16:12

Hælisleitendur mótmæla - Myndin tengist frétt ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Heyrðu það eru skýr fyrirmæli frá lögreglu. Þið blokkerið ekki innganginn að Alþingi. Færa sig frá, þið getið fengið ykkar tjáningarfrelsi annars staðar en ekki hérna fyrir. Bara núna. Það er ekkert annað í boði. Færið ykkur frá dyrum Alþingis. Þetta eru síðustu fyrirmælin. Færið ykkur frá dyrum Alþingis,“ þetta má heyra lögreglumann segja við mótmælendur sem höfðu tekið sér stöðu fyrir utan Alþingishúsið í gær á myndbandi sem Kvennablaðið hefur birt. Á myndbandinu má sjá hvar mótmælendur standa fyrir dyrum Alþingis, með límt fyrir munninn og orðin: Stöðvið brottvísun, skrifuð á lófa þeirra.

Á myndbandinu má heyra hvar mótmælandi segir lögreglumanni að engum sé meinuð inn eða útganga úr húsnæðinu og að mótmælendur hafi réttinn til að beita tjáningarfrelsi sínu með þessum hætti.

Lögregla hins vega ítrekar að það séu þeirra fyrirmæli til mótmælenda að færa sig og mótmælendur minntir á að það geti varðað saksókn eða sektum, sé ekki farið eftir fyrirmælunum.

Mótmælanda minnir lögreglumenn á að stór hluti mótmælenda skilur ekki íslensku. Þrátt fyrir þær áminningar hélt lögreglan áfram að ítreka fyrirmæli sín á íslensku.

Kvennablaðið greinir einnig frá því að hafa sent fyrirspurn til Dómsmálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort og þá hvers konar fræðslu og þjálfun lögregla hafi hlotið um vernd mótmælenda og réttarins til mótmæla. Í fréttinni segir :

„Á myndbandsupptöku frá þriðjudeginum virðist lögregla færa sig upp á skaftið gagnvart mótmælendum í hvert sinn sem þeir gegna fyrirmælum hennar: eftir að mótmælendur færa sig frá dyrum byggingarinnar, eins og lögregla krafðist, virðist sem þeim séu veitt ný fyrirmæli um að færa sig úr gangvegi, og loks enn lengra frá byggingunni en svo. Þegar mótmælendur minna lögreglu á stjórnarskrárbundið tjáningarfrelsi hrópar yfirmaður lögreglu á móti að mótmælendur geti „fengið sér tjáningarfrelsi annars staðar“.“

Rétt er að geta þess að þrátt fyrir að tjáningarfrelsi ríki á Íslandi þá er þó heimilt að takmarka það með lögum meðal annars í þágu allsherjarreglu og öryggis og samkvæmt lögreglulögum er lögreglu heimilt að hafa afskipti af borgurum til að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu. Í tilkynningu á heimasíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna mótmælanna í gær segir:

„Þrír voru handteknir við Alþingishúsið á öðrum tímanum í dag eftir að lögreglan var kölluð þangað vegna hóps af fólki sem hindraði aðgengi að húsinu. Þremenningarnir hlýddu ekki ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að láta af þessari háttsemi og voru handteknir eins og áður sagði.

Síðdegis, að loknum skýrslutökum, var hinum sömu sleppt úr haldi lögreglu.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala