fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Fréttir

Hörð gagnrýni á viðbrögð lögreglu gegn hælisleitendum: „Erfitt að sjá hvað kallar á þessa hörku“ – Sjáðu myndböndin

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. mars 2019 09:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í dag varð ég vitni að óvenju harkalegum viðbrögðum lögreglu, gagnvart hóp í afar veikri stöðu, sem hugðist tjalda á Austurvelli og vekja athygli á málstað sínum,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, um mótmæli hælisleitenda á Austurvelli síðdegis í gær og við lögreglustöðina á Hverfisgötu í gærkvöldi.

Hælisleitendur berjast gegn brottvísunum frá landinu auk þess sem þeir vilja betra aðgengi að heilbrigðisþjónustu og rétt til að vinna á landinu. Hópur fólks kom saman á Austurvelli í gær og hugðist gera tilraun til að reisa tjald á Austurvelli. Til handalögmála kom og beitti lögregla piparúða.

Um 40 manns söfnuðust svo saman fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu í gærkvöldi til að mótmæla handtöku tveggja einstaklinga úr hópnum fyrr um daginn. Barðar voru bumbur og kölluð slagorð. Myndband af mótmælunum má sjá hér neðst í fréttinni.

Ekkert sem gaf tilefni til slíkra viðbragða

Viðbrögð lögreglu hafa vakið talsverða athygli og sitt sýnist hverjum. Logi Einarsson segist ekki minnast þess að tiltölulega fámennum mótmælum hafi áður verið mætt með slíkum aðgerðum.

„Ég sá að minnsta kosti ekkert sem gaf tilefni til slíks. Þetta bætist við sífelldar þrengingar reglugerða dómsmálaráðherra í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og boðað frumvarps hennar um sömu hópa, sem eru mikil afturför. Er nema von að maður spyrji á hvað leið stjórnvöld eru og hvort hún sé farin með samþykki VG?“

Hyggst ræða málið á þinginu

Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG og varaformaður þingflokksins, segir aðgerðir lögreglu harkalegar. „Hér er fólk að nýta rétt sinn til að mótmæla og erfitt er að sjá hvað kallar á þessa hörku gegn þeim,“ hefur Miðjan eftir Kolbeini. Hann bætir við að honum finnist einboðið að þetta verði tekið upp á vettvangi þingsins og hyggst hann spyrjast fyrir um málið á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í dag. Segist hann vilja fá leiðbeiningar um það hvort málið eigi heima á borði nefndarinnar enda hafi mótmælin beinst gegn þingi og stjórnvöldum.

„Þetta er viðkvæmasti hópurinn í okkar samfélagi og ég tel að við eigum að gera gangskör í því að bæta aðbúnað hans og mæta honum með skilningi og mannúð, ekki hörku og piparúða.“

Svarað með ofbeldi

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og einn stofnandi Sósíalistaflokksins, blandar sér einnig í málið á Facebook. Hann segir að baki fundi flóttamanna á Austurvelli í gær hafi verið krafa um fund með ráðamönnum. „Þeirri kröfu svöruðu stjórnvöld með ofbeldi lögreglunnar,“ segir Gunnar Smári sem vísar svo í fundarboð hælisleitenda þar sem stóð:

„Fyrir meira en tveimur vikum sendum við bréf þar sem Rauði kross Íslands var milliliður og báðum um fund með dómsmálaráðherra, forsætisráðherra, velferðarráðherra og Útlendingastofnun. Á fundinum viljum við ræða þær ómannúðlegu aðstæður sem við hælisleitendur búum við og gera grein fyrir fimm kröfum sem við höfum sett fram:

  1. Ekki fleiri brottvísanir
    2. Efnismeðferð fyrir alla. Niður með Dyflinnarreglugerðina
    3. Réttur til að vinna
    4. Jafn aðgangur að heilbrigðisþjónustu
    5. Lokun einangruðu flóttamannabúðanna á ÁsbrúÍ stað þess að svara beiðni okkar um fund hefur Sigríður Á. Andersen tilkynnt að hún vilji herða enn frekar á Dyflinarreglugerðinni og koma í veg fyrir að flóttafólk geti fengið fjölskyldusameiningu. Auk þess vill hún fella niður tveggja vikna kærufrest sem hælisleitendur eiga nú rétt á. Allar þessar breytingar myndu án efa gera hælisferlið enn óbærilegra en það er nú þegar.

Á síðustu vikum höfum við staðið sameinuð og látið raddir okkar heyrast til þess að krefjast réttinda okkar sem manneskjur á þessari jörðu.“

Gunnar Smári segir að allir hljóti að skilja hversu veik staða flóttafólksins er og fundið til með fólkinu. Eriftt sé þó að setja sig í spor þessa fólks eða skilja örvæntingu þeirra. „Blessunarlega höfum við fæst upplifað svipaða stöðu. Auðvitað er til fólk sem er svo fullt haturs að það vill ekki virða viðlits þá sem veikar standa, er ekki einu sinni til í að hlýða á kröfur og sögur þeirra sem veikast standa í samfélaginu. En þannig eru fæstir. Það er því sorglegt að akkúrat þannig fólk skuli manna ríkisstjórnina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns