Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Viðreisnar, segir að það muni ekki auðvelda aðgengi að áfengi ef það verður selt í verslunum þar sem einkaaðilum sé þegar treyst til að þess að selja áfengi í gengum vínveitingaleyfi. Þorsteinn hefur ásamt öðrum þingmönnum Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Pírata lagt fram nýtt áfengisfrumvarp fyrir þingið og ræddi það í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun.
Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaforingi og fyrrverandi formaður SÁÁ, lét þingmennina heyra það í vikunni og sagði vilja þjóðarinnar skýran um að áfengi ætti ekki heima í matvörubúðum. Þorsteinn segir að nokkurs misskilnings gætti í umræðunni þar sem frumvarpið gengi út á að heimila einkaaðilum að selja áfengi í sérvörubúðum líkt og Vínbúðirnar eru en ekki matvöruverslunum. Hann segir það ekki breyta neinu varðandi aðgengi að áfengi.
„Ef að menn eru heiðarlegir og skoða hvernig við höfum staðið að uppbyggingu Vínbúðanna á síðustu 30 árum þar sem þeim hefur fjölgað úr 13 í 50 og vínveitingastaðir sem hafa margfaldast í fjölda og eru 1.200 talsins í dag. Þá erum við ekki með aðgengisstefnu þegar kemur að lýðheilsumarkmiðum, við höfum bara verið með opið aðgengi og þá breytir það engu að einkaaðilum sé líka heimilt að selja áfengi,“ segir Þorsteinn.