fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Fundu sundurhlutað lík fyrirsætu í farangursrými bifreiðar

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. janúar 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fimmtudag í síðustu viku barst lögreglunni í Oregon í Bandaríkjunum ábending um hugsanlegt morð. Í framhaldinu hófst leit að svartri BMW bifreið og fannst hún að lokum. Í farangursrými hennar var lík fyrirsætunnar Sara Zghoul. Það hafði verið bútað niður og pakkað niður í tvær ferðatöskur. Zghoul var 28 ára.

Fox segir að lögreglan hafi handtekið mann vegna málsins en ekki hefur verið skýrt frá nafni hans. Hann reyndi að fyrirfara sér áður en lögreglan handtók hann en hann var með skurðsár á hálsi og úlnlið.

Zghoul lætur eftir sig ungan son.

Lögreglan hefur ekki viljað segja neitt um málið og því hefur ekkert komið fram um hugsanlega ástæðu morðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“