Mikil vakning hefur orðið í Svíþjóð undanfarið í kjölfar #metoo. Hefur fjöldi fólks þar mótmælt kynbundnu ofbeldi í mörgum stéttum þjóðfélagsins. Konur í leikarastétt hafa stigið fram og sagt frá áreiti og kynferðisofbeldi. Hefur Ása Regnér ráðherra jafnréttismála sagt að taka þurfi á þessum málum af festu.
Þá hafa konur innan sænska réttarkerfisins stígið fram og lýst ofbeldi, áreitni og mismunun. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur gerir málinu skil. Hún vill að breytingar verði gerðar í efstu lögum réttarkerfisins hér á landi. Þórdís Elva segir:
„Ég er í sjokki yfir upplýsingunum frá þeim 4445 konum innan sænska réttarkerfisins sem stigu fram í gær og lýstu áreitni, ofbeldi og mismunun í sínum geira, innblásnar af #metoo. Sumum þeirra hefur verið nauðgað af dómurum sem dæma í nauðgunarmálum. JÁ, ÞIÐ LÁSUÐ ÞETTA RÉTT.“
Þórdís Elva bætir við:
„Sumar þeirra vinna með saksóknurum sem kalla kynferðisbrotaþola „druslur“. Ekkert bendir til þess að sænskir karlar séu verri en karlar í öðrum löndum, raunar er margt sem bendir til að í Svíþjóð sé kynjajafnrétti komið lengra en víða annars staðar.“
Þórdís segir að mikilvægt sé ekki að horfa í hina áttina eða hundsa vandann eða telja okkur trú um að þessi hrikalegu tíðindi komi okkur ekki við eða Íslendingar séu betri, þróaðri eða öðruvísi.
„Og það er engin furða að kynferðisbrotamál eru olnbogabarn réttarkerfisins um allan heim, þegar yfirgnæfandi meirihluti dómara og annarra lykilaðila eru karlar, sem margir hverjir eru drullugir upp á bak.“
Þórdís leggur mikla áherslu á að mikilvægt sé að konur eigi fulltrúa í efstu lögum réttarkerfisins. Bendir hún á þá staðreynd að í Hæstarétti situr ein kona og sjö karlar.
„ÁTTATÍU OG ÁTTA PRÓSENT DÓMARA Í HÆSTARÉTTI HAFA ENGA REYNSLU AF VERULEIKANUM SEM KONUR BÚA VIÐ. Það er bilun, gott fólk. Árið er 2017. Við vitum fokking betur.“