fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Nágrannaerjur á Njáluslóðum, „Þau lokuðu veginum með traktor“

Mikill kuldi milli Bergþórshvols og Káragerðis í Landeyjum – Deilt um veiðirétt

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 28. júlí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt Brennu-Njáls sögu bjuggu Njáll Þorgeirsson og kona hans, Bergþóra Skarphéðinsdóttir, á bænum Bergþórshvoli í Landeyjum fyrir rúmum þúsund árum síðan. Bergþóra átti í erjum við Hallgerði langbrók, konu Gunnars á Hlíðarenda, sem enduðu með vígum á báða bóga og að lokum brennu bæjarins.

Í dag er Bergþórshvoll 1 fornt prestsetur en Bergþórshvoll 2 er gistiheimili sem Runólfur K. Maack og Benedikta Haukdal reka. Innar stendur bærinn Káragerði þar sem Viðar Halldórsson og Ragna Bogadóttir búa. En til að komast að þangað þarf að aka í gegnum jörð sem tilheyrir Bergþórshvoli. Aðeins um 400 metrar skilja nágrannana að en það er síður en svo gott á milli þeirra.

Lokuðu veginum með dráttarvél

Nýlega fjarlægðu ábúendur á Bergþórshvoli dráttarvél sem hafði verið skilin eftir á miðjum veginum sem liggur upp að Káragerði. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem veginum er lokað á þennan hátt og lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af málinu. „Það er búið að taka traktorinn frá í bili. Það koma upp svona árekstrar. Við höfum nú fengið frið frá þeim svona á annað ár,“ segir Viðar í Káragerði.

Hægt er að komast að Káragerði með því að keyra slóða en þessar aðgerðir skapa engu að síður vissa hættu því að stærri bifreiðar, eins og sjúkrabílar og slökkviliðsbílar, komast hann ekki. Fyrir utan óþægindin af lokuninni getur hún skapað raunverulega hættu.

Ábúandi á Bergþórshvoli segir hins vegar að heimkeyrslan sé einungis upp að Bergþórshvoli, nýtt deiliskipulag staðfesti það. Búið var að láta fólkið í Káragerði vita af lokuninni fyrirfram og þau hafi haft nokkur ár til að koma sér upp eigin heimkeyrslu. Það komi engum við hvar þau leggi sínum dráttarvélum.

Viðar segir: „Þetta er náttúrlega bara héraðsvegur. Það voru hérna hjón og þá var þetta héraðsvegur. Þegar þau hættu að búa var þetta skráð lögbýli í eyði þangað til að við fluttum hingað. Eftir að það kom deiliskipulag og vegurinn var settur inn þá vilja þau á Bergþórshvoli meina að við eigum ekki að keyra veginn.“

Margra ára kuldi

Málið tengist Eggerti Haukdal (1933-2016), alþingismanni og bónda á Bergþórshvoli um áratuga skeið. Benedikta var frænka Eggerts en Ragna systir sambýliskonu hans. Deildar meiningar eru hins vegar um það hvernig deilan hófst. Bæði býlin buðu í jörð sem þjóðkirkjan átti á Bergþórshvoli 1 þegar hún var sett á sölu og boði Runólfs og Benediktu var tekið. Viðar segir það þó ekki ástæðuna. „Okkur var alveg sama. Við buðum í þessa jörð reyndar. En ef það hefði verið almennilegt fólk þarna þá skiptir það okkur ekki neinu máli.“

„Ef það hefði verið almennilegt fólk þarna þá skiptir það okkur ekki neinu máli.“

Hann segir að málið snúist fyrst og fremst um hlunnindi. Bergþórshvoll og Káragerði voru eitt sinn sameiginleg jörð en maður að nafni Kristinn Þorsteinsson keypti Káragerði út úr henni um miðja síðustu öld. Þá hafi hlunnindi, eins og til dæmis til malartaka til eigin nota, fylgt með í kaupunum. Hann segir Runólf og Benediktu hins vegar ekki viðurkenna þetta „af því að þetta var ekki tekið fram í sölusamningum sem þau gerðu við prestana þegar þeir seldu þeim jörðina.“

Arður úr fiskveiðiá frystur

Ein af þeim hlunnindum sem nágrannarnir deila um er veiðiréttur í Affallinu, á sem rennur austan við Bergþórshvol. Samkvæmt Viðari vildi Runólfur sem er formaður veiðifélagsins í ánni, fá óskiptan arð Bergþórshvols og Káragerðis útgreiddan.

„Hann er formaður og boðaði aldrei fund í fyrra,” segir Viðar en allir aðrir aðilar að veiðifélaginu fengu ábyrgðarbréf með fundarboði. Viðar hafi hins vegar komist á snoðir um fundinn og mætt með uppáskrifaða pappíra um aðild Káragerðis að félaginu. Samkvæmt ótengdum aðila var fundurinn látinn standa þó að ólöglega hefði verið staðið að fundarboðinu en ítrekað að Viðar yrði boðaður á fundi félagsins í framtíðinni.

Hann segir: „Káragerði hefur verið í veiðifélaginu frá því það var stofnað og tekið þátt í allri uppbyggingu sem hefur þurft að leggja fjármagn í. Það fer ekkert á milli mála en þetta vill hann ekki viðurkenna.“

Vegna þessara deilna hefur verið gripið til þess ráðs að greiða engan arð út úr ánni heldur geyma hann á bankareikningi. Það megi ekki borga út arðinn fyrr en menn verða sammála um ráðstöfunina. Því er ljóst að deilan kemur niður á öllum þeim sem eiga aðild að ánni. Málið snýst þó ekki aðeins um peninga heldur hafa sveitungar þeirra í Landeyjum einnig áhyggjur af ástandinu og andanum í sveitinni.

Skærur

Viðar segir vegagerðina hafa gefið grænt ljós á gerð heimkeyrslu að Káragerði eftir að deiliskipulagið var staðfest. Það eigi þó eftir að teikna hana upp og annað sem tilheyri slíkri framkvæmd. Hann segist ólmur vilja koma upp eigin heimkeyrslu sem fyrst og losna við að keyra í gegn hjá Bergþórshvoli. „Þá á nú eftir að reyna á það hvort þau hleypa okkur í sandinn til að keyra í veginn.“

„Við viljum hafa sem minnst samskipti við þau en alltaf þegar kemur eitthvað upp á, þá er það frá þeim,“

Hann segir illindin blossa upp milli bæjanna við og við. „Þetta hafa verið leiðindasamskipti þarna á milli og það koma upp svona árekstrar. Við viljum hafa sem minnst samskipti við þau en alltaf þegar kemur eitthvað upp á, er það frá þeim.

Við bárum einu sinni möl ofan í veginn því hann var holóttur, bæði okkar kafla og þeirra. Þá varð hann (Runólfur) alveg vitlaus og mokaði henni upp úr og sturtaði yfir til okkar. Þannig að við komumst ekki í burtu. Hún (Benedikta) er að ráðast á barnabarnið okkar á Facebook, sem hefur aldrei komið nálægt þeim. Hún er bara með meiðyrði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“