Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, virðist vera að koma sér út úr vandræðunum sem fylgdu kosningunum í byrjun mánaðarins. Til þess að tryggja sér meirihluta á breska þinginu þurfti hún tíu þingmenn og þá fann hún í litlum furðuflokki á Norður-Írlandi.
Til þess að gera þá að þingmönnum sínum þarf Theresa May ekki að gera annað en að láta breska ríkið borga einn milljarð punda eða sem svarar til 135 milljarða íslenskra króna. Við frónbúar erum vön pólitískum hrossakaupum en ekki jafn einföldum og þessum.
Það væri kannski ráð að fylgja þessari stefnu Breta eða hefði ekki verið nær að leggja nokkra milljarða inn á reikning Viðreisnar í stað þess að eyða kröftum og fé í að blekkja þá og þjóðina um að Sjálfstæðismenn séu að fara að styðja þær breytingar á sjávarútvegskerfinu sem Viðreisn hefur lagt upp með.