fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Ég fór í eina meðferð og missti barnið að eilífu“

Frá Noregi til Íslands og nú til Danmerkur – Barnsfaðir Christinar Elvu fær forræðið

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. mars 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Af hverju fæ ég öðruvísi meðferð en aðrar mæður? Af hverju er litið niður á mig og af hverju fæ ég ekki annað tækifæri? Ég skil þetta bara ekki,“ segir Christina Elva sem missti að fullu forræði yfir fimm ára syni sínum, Eyjólfi, síðasta haust.

Nýjustu vendingar í málinu eru þær að faðir drengsins mun fá forræði yfir drengnum og kemur hann til með að flytja til Danmerkur þar sem hann býr. Við það er Christina Elva mjög ósátt. Hún er ekki ósátt við að drengurinn fái að umgangast föður sinn heldur að hann skuli flytja til Danmerkur og henni ekki gefinn kostur að tjá sig um málið – henni hafi ekki einu sinni verið sagt frá þessari ráðstöfun. Þessar fréttir hafi sonur hennar flutt henni í síðustu heimsókn sinni á vistheimilið þar sem hann hefur búið frá því fyrir jól.

Mál hennar hefur vakið mikla athygli en móðir Christinar Elvu, Helena Brynjólfsdóttir, rændi drengnum frá Noregi í fyrra. Það gerði hún þegar fréttir bárust af því að taka ætti drenginn af fjölskyldunni og vista hjá ókunnugum til átján ára aldurs.

Christina Elva ásamt kærasta sínum.
Sakna Eyjólfs Christina Elva ásamt kærasta sínum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Kvaddi í desember

Þegar til Íslands var komið tók við mikil óvissa þar sem ekki var vitað hver örlög drengsins yrðu. Fljótlega varð þeim mæðgum þó ljóst að norska barnaverndin myndi ekki gefast upp í málinu. Forsvarsmenn norsku barnaverndarinnar settu sig í samband við innanríkisráðuneytið og báðu ráðuneytið að koma áskorun á framfæri við Christinu Elvu um að skila drengnum þegar í stað í hendur norskra yfirvalda. Við því var ekki orðið og fór svo að norska barnaverndin réð sér lögfræðing hér á landi og stefndi Christinu Elvu á þeim grundvelli að norskur dómstóll hafi þegar dæmt af henni forræðið og móðir hennar þá flutt barnið til Íslands með ólögmætum hætti.

Christina Elva tapaði málinu, bæði í héraði og Hæstarétti og varð því að kveðja fimm ára son sinn í desember á síðasta ári, aðeins fimm dögum fyrir jól.

Er orðinn leiður

„Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Hann var tekinn af mér 21. desember og ég fékk að fylgja honum inn á heimilið og það þótti mér gott. Hann fékk líka herbergi sem hann var mjög sáttur við og hann hefur verið mjög ánægður þarna. Fyrst um sinn var spennandi að eignast vini þarna en nú síðustu vikur er eins og hann sé orðinn leiðari og sífellt með áhyggjur. Í einni heimsókninni spyr hann mig rosalega oft hvort hann megi koma heim til þess að fara út og gefa öndunum að borða eins og okkur fannst alltaf gaman að gera saman,“ segir Christina Elva.

„Hann talar íslensku og á að vera á Íslandi,“ segir Christina.
„Hann talar íslensku og á að vera á Íslandi,“ segir Christina.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hún hefur að eigin sögn skilað þvagprufum til barnaverndaryfirvalda til þess að sýna fram á að hún sé að standa sig í þeirri von um að fá annað tækifæri til þess að vera móðir barns síns. En sú von virðist ekki raunhæf. Að minnsta kosti ekki ef marka má nýjustu fréttirnar. Fréttir sem Christina Elva segist hafa fengið frá syni sínum og barnsföður – enginn hafi enn haft samband frá barnaverndarnefnd.

Mömmuhjartað grætur

„Ég spyr mig oft og mörgum sinnum af hverju ég fái ekki sömu meðferð hjá barnaverndarnefnd og aðrir foreldrar sem hafa lent í óreglu og náð sér á strik aftur. Þeir fá annað tækifæri til að eyða lífinu með börnunum sínum. Dýrmætt tækifæri sem ég virðist ekki fá og ég skil ekki af hverju. Mamma mín [Helena, innsk. blm.] fær varla að sjá hann lengur og ég fæ afskaplega litlar upplýsingar um stöðu málsins. Nú á að fara að rífa upp ræturnar hans hérna þar sem hann hefur eignast vini og er í skóla. Hann talar íslensku og á að vera á Íslandi,“ segir hún og heldur áfram.

„Ekki misskilja mig. Ég og barnsfaðir minn eigum í góðu sambandi, hann á yndislegt heimili þarna úti en það er bara ekki heimilið hans, þar eru ekki ræturnar hans að mínu mati. Það eru eflaust margir sem líta á þetta öðruvísi, en ég og mamma erum búnar að berjast fyrir því að hann fái að alast upp á Íslandi og ég afsalaði mér hinum ýmsu réttindum við að tryggja þann samning en nú á að flytja hann til Danmerkur. Mömmuhjartað grætur.“

Ekki náðist í talsmann barnaverndar við vinnslu fréttarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum