fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að hjólreiðamenn verði bannaðir á stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins

Tillagan kemur til vegna banaslyss í Ártúnsbrekku rétt fyrir jólin 2015

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. mars 2017 15:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Innanríkisráðuneytisins að taka til skoðunar að hjólreiðar verði bannaðar á fjölakreinavegum í þéttbýli þar sem umferðarþungi og hraði er mikill,“ segir í tillögu rannsóknarnefndar samgönguslysa til öryggisáttar.

Tilefnið er banaslys sem varð í Ártúnsbrekku að morgni 21. desember árið 2015 þegar ekið var á hjólreiðamann.

Ekið aftan á hjólreiðamann

Slysið varð með þeim hætti að ekið var aftan á hjólreiðamanninn á Vesturlandsvegi vestan Höfðabakka. Myrkur var úti og þriggja stiga frost þennan morgun, en samkvæmt því sem fram kemur í skýrslunni fara 74.400 ökutæki þennan veg að meðaltali á degi hverjum.

Í skýrslu vegna slyssins leggur nefndin til, sem fyrr segir, að lagt verði bann við hjólreiðum á umferðarmiklum fjölakreinavegum á höfuðborgarsvæðinu, að reglugerð um gerð og búnað reiðhjóla verði tekin til endurskoðunar og brýnt verði á reglum um aukahluti í sjónsviði ökumanna bifreiða, eins og það er orðað. Þá er einnig ábending til bæði ökumanna og hjólreiðamanna um sýnileika og akstur í skammdeginu.

Sá ekki hjólreiðamanninn

Bifreiðinni, sem ekið var á hjólreiðamanninn, var ekið lengst til hægri upp Ártúnsbrekku og var einn farþegi í aftursæti bifreiðarinnar. Í skýrslunni kemur fram að ökumanni og farþega hafi borið saman um að hvorugur hefði séð hjólreiðamanninn fyrr en rétt áður en til árekstrar kom. Sveigði ökumaður þá til vinstri sem reyndist of seint og náði hann ekki að forða slysinu.

Í orsakagreiningu kemur fram að vegurinn sé hættulegur fyrir hjólreiðamenn, hjólreiðamaðurinn hafi ekki gætt nægilegrar aðgæslu með því að hjóla á veginum, en að sama skapi hafi ökumaðurinn ekki verið með fulla athygli við aksturinn og séð hjólreiðamanninn of seint. Þá var bifreiðinni ekið yfir leyfilegan hámarkshraða sem er 80 kílómetrar á klukkustund. Samkvæmt GPS-mæli hafi bifreiðin verið á 92 kílómetra hraða rétt fyrir slysið en ökumaðurinn hafi talið sig vera á 85 kílómetra hraða.

Mikill hraðamunur eykur hættu á slysum

Í skýrslunni kemur fram að mikil hætta sé á að afleiðingar áreksturs milli hjólreiðamanns og bifreiðar verði mjög alvarlegar þegar ökuhraði er mikill.

„Eins skapar mikill munur á hraða farartækja aukna hættu á slysum. Þegar hraðamunur er mikill nálgast farartæki hvort annað mun hraðar en ella og er því minni tími til að bregðast við ef hætta skapast. Hjólreiðar á fjölakreinavegum þar sem hraði er mikill eru hjólreiðamönnum afar hættulegar. Hjólreiðamaður á t.d. í erfiðleikum með að fylgjast með umferð fyrir aftan sig við akreinaskipti. Einungis er hægt að líta í örskotsstund aftur fyrir sig án þess að eiga á hættu að missa stjórn á hjólinu,“ segir í skýrslunni.

Ráðuneytið taki málið til skoðunar

Vísað er í 25. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna um umferð á vegum þar sem segir að banna skuli umferð gangandi vegfarenda, reiðhjóla og léttra bifhjóla á hraðbrautum eða samskonar vegum.

„Líkja má sumum einstökum stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu við hraðbrautir, að minnsta kosti á köflum. Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Innanríkisráðuneytisins að taka til skoðunar að hjólreiðar verði bannaðar á fjölakreinavegum í þéttbýli þar sem umferðarþungi og hraði er mikill,“ segir í skýrslunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag