fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

„Þetta plagg heilbrigðisráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað

Félag atvinnurekenda tætir í sig rafrettufrumvarp Óttarrs Proppé – Illa undirbúin drög og illa rökstudd

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 1. mars 2017 16:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag atvinnurekenda (FA) segir í umsögn um drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafrettur að þau séu illa undirbúin og illa rökstudd. Félagið telur skorta rök fyrir viðurhlutamiklu inngripi í athafnafrelsi fólks sem felist í banni við notkun rafretta á tilteknum stöðum og að rafrettur og áfyllingarílát megi ekki vera sýnileg í verslunum.

FA hefur sent velferðarráðuneytinu umsögn um drög að frumvarpinu, sem birt voru til kynningar á vef ráðuneytisins. FA fagnar því að settur sé lagarammi um rafsígarettur hvað varðar öryggi, gæði og upplýsingar fyrir neytendur, en er gagnrýnið á ýmsa þætti frumvarpsdraganna.

Íþyngjandi innleiðing Evrópureglna

Í fyrsta lagi bendir FA á að með frumvarpinu eigi að innleiða hluta af tilskipun Evrópusambandsins. Engin greinargerð fylgi hins vegar frumvarpsdrögunum og því sé engin leið að sjá hvaða greinar frumvarpsins eigi rætur að rekja til Evróputilskipunar. Félagið rifjar upp og tekur undir nýlega gagnrýni ráðgjafanefndar um opinberar eftirlitsreglur, sem átelur að við samningu lagafrumvarpa sem varða regluverk atvinnulífsins sé greiningu á hugsanlegum íþyngjandi áhrifum reglna mjög ábótavant.

Heilbrigðisráðherra.
Óttarr Proppé Heilbrigðisráðherra.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ekkert mat á með- og mótrökum

FA bendir í öðru lagi á að mjög skiptar skoðanir séu um rafsígarettur og skaðsemi eða skaðleysi þeirra, meðal annars meðal lækna. Frumvarpinu fylgi ekkert mat ráðuneytisins á rannsóknum og álitum læknasamfélagsins. „Telur FA að afstaða ráðuneytisins verði að byggja á haldbærum rökum þar sem vísindaleg gögn um rafsígarettur og áhrif þeirra eru lögð til grundvallar,“ segir í umsögninni.

„Lýðheilsurök eru fyrir því að notkun rafsígarettna afstýri heilsutjóni, með því að reykingamenn hætti að reykja og færi sig yfir í notkun þeirra í staðinn. Jafnframt eru rök fyrir því að það kunni hafa neikvæð áhrif á lýðheilsu að ungt fólk sem byrjar að fikta við rafsígarettur leiðist síðar út í tóbaksreykingar. Ekkert hefur komið fram um það hvernig þessi rök voru vegin saman áður en ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu sem fram kemur í frumvarpinu.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Bann byggir ekki á fullnægjandi gögnum

Í þriðja lagi gagnrýnir FA að án rökstuðnings skuli vera lagt til að sömu takmarkanir verði á notkun rafsígaretta og reyktóbaks og óheimilt að nota þær á tilteknum stöðum. „Bann á tiltekinni háttsemi er viðurhlutamikið inngrip í athafnafrelsi manna sem verður að byggja á fullnægjandi gögnum. Varla er ástæða til að banna notkun rafsígaretta í tilteknum rýmum nema sýnt sé fram á að hún valdi fólki í rýminu sambærilegum skaða og tóbaksreykingar. Þá má velta því upp hvaða rök standi til þess að hindra sýnileika rafsígaretta og áfyllingaríláta í verslunum, eins og lagt er til í 5. gr. frumvarpsins, meðan t.d. nikótíntyggjó, sem gegnir sama hlutverki þ.e. að aðstoða fólk við að hætta að reykja, er sýnilegt viðskiptavinum. Hér líkt og í öðrum málum verður að gæta jafnræðis og meðalhófs.“

Loks fer FA fram á að verði frumvarpsdrögin að lögum verði gefinn mun lengri aðlögunartími fyrir innflytjendur og seljendur rafsígaretta en þar er gert ráð fyrir, svo fyrirtækin geti gert áætlanir í samræmi við nýtt regluverk.

Lítið hugsað

„Þetta plagg heilbrigðisráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað. Það er ástæða til að vinna þetta mál mun betur og draga úr þeim inngripum í athafna- og atvinnufrelsi sem felast í frumvarpsdrögunum,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

SJá einnig:

Fordæma vanhugsaða forræðishyggju Óttars

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni