fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fréttir

Ævintýragarðinum endanlega lokað

Ekki opnaður aftur eftir íhlutun heilbrigðiseftirlitsins – Eigandinn ósáttur við smámunasemi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. febrúar 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umsjónaraðilar Ævintýragarðsins í Skútuvogi hafa ákveðið að opna ekki garðinn aftur eftir að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði þeim að loka honum í september 2016 eftir ítrekaðar athugasemdir. Til stóð að opna garðinn í breyttri og smærri mynd á nýju ári en nú er ljóst að svo verður ekki. Stofnandi Ævintýragarðsins segir að þeir hafi á endanum gefist upp gagnvart ítrekuðum aðfinnslum, nýjum kröfum og fjölgun eftirlitsaðila sem hafi gert reksturinn ómögulegan. Hann segir það skjóta skökku við að borgin skuli ganga svo hart fram í ljósi þess að borgin sé síðan í samkeppni um sambærilega afþreyingu og hreyfingu fyrir börn, meðal annars með Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Ævintýragarðurinn var stórt leiksvæði fyrir krakka þar sem var að finna hoppukastala, rennibrautir, boltaland, trampólín, risaleikgrind og fleira auk þess sem hægt var að kaupa veitingar á svæðinu. Garðurinn var vinsæll vettvangur til að halda afmælisveislur. Reksturinn lýtur hins vegar starfsleyfis- og eftirlitsskyldu og laut eftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Í tilkynningu á Facebook-síðu garðsins þann 21. janúar var tilkynnt um varanlega lokun hans þar sem segir að þrátt fyrir að starfsmenn og rekstraraðilar hafi reynt að uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til slíkra staða hafi heilbrigðiseftirlitið alltaf komið með nýjar athugasemdir.

„Kom það úr hörðustu átt því Reykjavíkurborg er í samkeppni með sambærilega afþreyingu og hreyfingu fyrir börn. Borginni ber því að gæta sérstakrar varúðar þar sem hagsmunaárekstrar gætu orðið. Með nýjum kröfum og fjölgun eftirlitsaðila ákváðu rekstraraðilar að hætta rekstri.“

Leikgrindin í Ævintýragarðinum var engin smásmíð, en nú hyggjast eigendur selja hana og önnur fjölmargra leiktækja sem þar var að finna.
Vinsæl afþreying hjá börnum Leikgrindin í Ævintýragarðinum var engin smásmíð, en nú hyggjast eigendur selja hana og önnur fjölmargra leiktækja sem þar var að finna.

Mynd: Facebook-síða Ævintýragarðsins

Athugasemdir við öryggi og óþrifnað

DV óskaði eftir og fékk eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og kvartanir sem borist höfðu stofnuninni vegna Ævintýragarðsins frá árinu 2014. Þar eru ítrekaðar athugasemdir, stórar jafnt sem smáar, gerðar. Í eftirlitsskýrslum frá þessu tímabili eru gerðar margvíslegar athugasemdir við ýmis öryggisatriði og að þrifum og umgengni væri ábótavant. Í eldhúsi staðarins hafi komið fyrir við eftirlitsathugun að útrunnin matvæli fyndust í eldhúsi, óvarin matvæli í glugga, hreinsiefni í sömu hillu og glös svo fátt eitt sé nefnt.

Nokkrar athugasemdir voru þá gerðar af heilbrigðiseftirlitinu við ástand, uppsetningu og viðhald nokkurra tækjanna sem reyndust ófullnægjandi og í einhverjum tilfellum hugsanlega hættuleg börnum. Hoppukastalinn var eitt sinn ekki festur við gólfið og þá var ekki nógu mikið loft í annað sinn þar sem það lak of hratt úr honum og því hætt við að hann legðist ofan á börnin.

Þá höfðu borist þónokkrar kvartanir frá áhyggjufullum foreldrum sem gerðu athugasemdir við öryggismál, fáliðað starfslið og afskiptaleysi starfsmanna. Í einu tilfellinu var kvartað undan því að þrjú barnafmæli væru í gangi á sama tíma en aðeins einn starfsmaður á vakt.

Alvarlegasta slysið sem tilkynnt var um varðaði handleggsbrot fjögurra ára stúlku í júlí 2014 við leik sem rekja mátti til ærsla tveggja drengja við rennibraut.

Ósáttur við smámunasemi

Sigurður Antonsson er stofnandi Ævintýragarðsins en hann tók við garðinum á nýjan leik í apríl í fyrra en þar áður höfðu aðrir séð um reksturinn. Hann skrifaði tilkynninguna um lokunina á Facebook og í samtali við DV segir hann að það sé snúið að borgin sé að reka og styrkja sambærilega starfsemi víða um borgina á sama tíma og þjarmað hafi verið að starfsemi Ævintýragarðsins.

„Ég er ekki að segja að það sé þess vegna sem þeir lokuðu en það er sérstakt að heilbrigðiseftirlit borgarinnar, með smásmugulegheitum, skuli vera að hóta mönnum lokunum – og hafa gert í mörg ár út af, meira og minna, smáatriðum, eins og að losnað hafi upp horn á teppi. Mér fannst að það þyrfti að koma því á framfæri til gestanna sem verið hafa tryggir og góðir hvernig þetta var,“ segir Sigurður um það sem hann gefur í skyn í tilkynningunni og bætir við: „Það er ekki gott að sami aðilinn sé með eftirlit hjá öðrum á sama tíma og borgin er að reka svona staði. Ef borgin væri að reka hótel í Reykjavík væri það þá rétti umsagnaraðili með öðrum hótelum? Mér finnst fólk hafa farið fram úr sér.“

En í ljósi þess að heilbrigðiseftirlitið gerði ítrekaðar athugasemdir í eftirlitsskýrslum sínum í gegnum tíðina auk þess sem kvartanir bárust frá gestum, þýða þessar ítrekuðu aðfinnslur þá ekki einfaldlega að menn voru ekki að sinna þessu nógu vel?

„Ég þekki ekki hvernig það var áður, en við tókum við þessu í apríl og það var þvílík vinna lögð í að hafa þetta allt í lagi og allt þrifið hátt og lágt þarna inni. Svo voru menn að bæta allt sem krakkar gætu hugsanlega rekist á. Það urðu aldrei nein slys á krökkum þarna, í okkar tíð. En alltaf komu, eftir sem áður, nýjar athugasemdir,“ segir Sigurður.

Ævintýrið úti og gæti endað á eBay

Svo fór að heilbrigðiseftirlitið boðaði lokun garðsins og í september síðastliðnum var því fylgt eftir þar sem tilteknar úrbætur höfðu ekki verið gerðar. Sigurður kveðst ekki vita hvað það var nákvæmlega sem gerði útslagið, sonur hans hafi séð um samskiptin við eftirlitið. Sem fyrr segir voru hugmyndir uppi um að opna staðinn aftur eftir áramót í breyttri og smærri mynd en þau áform hafa verið slegin út af borðinu. Ævintýrið er úti.

„Rekstur sem ég hef stundað hefur verið með þeim ágætum að menn hafa tekið eftir því og hrósað okkur mikið fyrir, þannig að ef við getum ekki rekið svona þá held ég að þetta sé mjög erfitt, þótt ég segi sjálfur frá. En ég veit bara að fólkið sem vann þarna síðustu mánuðina fékk hrós frá fólki sem var ánægt með hvernig þetta var.“

Sigurður hefur auglýst tækin til sölu fyrir fólk sem hefur hugsanlega áhuga á sambærilegum rekstri í nágrenni við höfuðborgarsvæðið eða erlendis. Hann segir að þeim hafi verið ráðlagt að setja allan búnaðinn á eBay, þar sem hann yrði væntanlega seldur á hrakvirði að hans sögn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Sauð upp úr hjá Dóru Björt og Ragnhildi Öldu – „Það er fáránlegt hvernig þú lætur. Þetta er alveg svakalegt með þig“

Sauð upp úr hjá Dóru Björt og Ragnhildi Öldu – „Það er fáránlegt hvernig þú lætur. Þetta er alveg svakalegt með þig“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum
Hera úr leik
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Íslenskur flugdólgur um borð í vél frá Play handtekinn í Alicante

Íslenskur flugdólgur um borð í vél frá Play handtekinn í Alicante
Fréttir
Í gær

Staðreyndavillur í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar um staðreyndavillur í innslagi Maríu Sigrúnar

Staðreyndavillur í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar um staðreyndavillur í innslagi Maríu Sigrúnar
Fréttir
Í gær

Óli Palli ætlar ekki að horfa á Eurovision – Ísrael sé „hræðilegasta hrekkjusvín í öllum heiminum“

Óli Palli ætlar ekki að horfa á Eurovision – Ísrael sé „hræðilegasta hrekkjusvín í öllum heiminum“
Fréttir
Í gær

Ögmundur skilur ekkert í ritstjórn Kveiks – „Hvers vegna í ósköpunum var þessum fréttaskýringarþætti ekki tekið fagnandi?“

Ögmundur skilur ekkert í ritstjórn Kveiks – „Hvers vegna í ósköpunum var þessum fréttaskýringarþætti ekki tekið fagnandi?“
Fréttir
Í gær

Sagt upp eftir að hún krafðist leiðréttingar á kjörum sínum vegna meintrar mismununar

Sagt upp eftir að hún krafðist leiðréttingar á kjörum sínum vegna meintrar mismununar
Fréttir
Í gær

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina