Á Íslandi bíða 2.000 manns eftir því að hefja afplánun í fangelsi vegna ógreiddra sekta. Stærstur hluti þess hóps bíður afplánunar vegna umferðarlagabrota. Morgunblaðið greinir frá þessu.
Dómar vegna umferðarlagabrota nema tveimur til sex dögum en á bilinu 15 til 27 einstaklingar hafa að jafnaði farið í fangelsi á hverju ári vegna slíkra brota.