fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Október: Kosningar og fjör í Framsókn

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 1. desember 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

2. október

Sigurður Ingi formaður

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra er kjörinn formaður Framsóknarflokksins á flokksþingi Framsóknarmanna í Háskólabíói. Hann hlaut 370 atkvæði en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 329 og þurfti því að láta í minni pokann. Mikill titringur var innan flokksins í aðdraganda formannskjörsins. Niðurstaðan kemur nokkuð á óvart í ljósi þess að skoðanakannanir meðal þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn síðustu daga bentu til þess að Sigmundur Davíð myndi hafa betur.

5. október

Geir fékk tvöfalt

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fær tveggja mánaða laun í bónus vegna vinnu sinnar vegna EM í knattspyrnu sem fram fór í Frakklandi í sumar. Annað starfsfólk KSÍ fékk eins mánaðar laun í bónus. „Greiðslur starfsmanna, leikmanna og mín eru trúnaðarmál. Ég get ekki staðfest eitt né neitt og sérstaklega ekki mín laun,“ sagði Geir.

5. október

Stakk lögreglumann

Ung kona, sem grunur leikur á að sé smituð af lifrarbólgu C, veitist að lögreglumanni í miðbæ Akureyrar og stingur hann með sprautunál. Ekki er vitað hvort lögreglumaðurinn hafi smitast af sjúkdómnum. Konan er sögð hafa verið í annarlegu ástandi og mun hún hafa slegið í hönd lögreglumannsins með nálinni. Var hún handtekin í kjölfarið en hún hefur áður komið við sögu lögreglu.

6. október

Ofsóttir af ofsatrúarpari

Íslenskir unglingar fá sig fullsadda af erlendu ofsatrúarpari sem ofsækir þá. Nemendur í MH voru á leið niður á Klambratún að hitta nemendur úr Kvennaskólanum til að fara í ýmsa leiki þegar ofsatrúarpar, Simon og Angela Cummings, hóf að predika fyrir framan hópinn. Varaði parið við samkynhneigð og kynlífi fyrir hjónaband.

7. október

Kaupa Emmessís

Hópur fjárfesta undir forystu Einars Arnar Jónssonar, sem oft er kenndur við Nóatún, eignast 90% hlut í Emmessís. Samkvæmt heimildum DV fóru fjárfestarnir inn í hluthafahópinn í ágúst þegar þeir lögðu ísgerðinni til nýtt hlutafé upp á 50 milljónir króna en fyrirtækið var áður í eigu Sparisjóðabankans (SPB) og Eignarhaldsfélagsins Arev.

10. október

Edda jarðsungin

Edda Heiðrún Backman leikkona, söngkona, leikstjóri og myndlistarmaður er jarðsungin frá Hallgrímskirkju. Fjölmargir vinir Eddu úr leiklistarheiminum rituðu til hennar falleg orð á minningarsíðum Morgunblaðsins auk þess sem margir tjáðu sig á samfélagsmiðlum um kynni sín af listakonunni ástsælu.

13. október

Píratar og Lækjarbrekka

Píratar lýsa sig reiðubúna til að hefja stjórnarmyndunarviðræður fyrir alþingiskosningar og senda forsvarsmönnum Bjartrar framtíðar, Samfylkingarinnar, Vinstri hreyfingarinnar -græns framboðs og Viðreisnar bréf þess efnis. Í kjölfarið funduðu formenn allra flokkanna nema Viðreisnar á veitingastaðnum Lækjarbrekku.

19. október

Nauðgari laus

Eiríkur Fannar Traustason, sem hlaut fimm ára fangelsisdóm í Hæstarétti í byrjun júní, fyrir nauðgun í Hrísey í fyrrasumar, gengur laus. Eiríkur nauðgaði sautján ára franskri stúlku, sem var einsömul á ferðalagi um landið á reiðhjóli. Eiríkur var í nóvember úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna, sem hann sætti þar til dómur féll í máli hans í Héraðsdómi Norðurlands eystra.

30. október
Ríkisstjórnin fellur
Engir tveir flokkar geta myndað ríkisstjórn samkvæmt úrslitum Alþingiskosninganna 29. október. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fellur og ekki er hægt að mynda Lækjarbrekkustjórnina svokölluðu; ríkisstjórn Pírata, Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna. Útlit er fyrir flóknar stjórnarmyndunarviðræður.

31. október

Hækkar laun

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Sama dag og Íslendingar kusu til Alþingis ákveður Kjararáð á fundi sínum að hækka þingfararkaup alþingismanna og forseta Íslands verulega. Breytingin tekur gildi frá og með 1. nóvember 2016. Þá skulu laun forseta Íslands vera 2.985.000 krónur á mánuði. Áður voru laun forseta um 2,3 milljónir og því hækkaðu laun Guðna Th. Jóhannessonar um tæpar 700 þúsund krónur á mánuði, um 30%. Þingfararkaup alþingismanna verður 1.101.194 krónur á mánuði en var áður 762.940 kr. Það er hækkun um 338.254 kr. og er launahækkun upp á 44%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag