Dofri Hermannsson segir að undanfarnar vikur hafi verið „absúrd“
„Hvað er hægt að gera þegar barnsmóðir manns vill engar sættir og maður hefur misst samband við börnin sín vegna þeirrar hollustuklemmu sem heift og kuldi í samskiptum setur þau í?“
Á þessum orðum hefst pistill leikarans Dofra Hermannssonar um forræðisdeilu sem hann stendur í. Pistill Dofra, sem hann birtir í opinni færslu á Facebook, hefur vakið talsverða athygli en þar rekur hann atburði sem fengið hafa mikið á hann undanfarnar vikur, meðal annars skýrslutöku hjá lögreglu og erfið samskipti við barnsmóður sína. Segir hann að undanfarnar vikur hafi verið „absúrd“ og segir Dofri að nú sé kominn tími til að segja frá en um leið vera tilbúinn til sátta.
Dofri segir að þann 26. ágúst síðastliðinn hafi dóttir hans farið til móður sinnar á föstudegi. Útiföt stúlkunnar urðu eftir í bílnum svo hann segist hafa rennt með þau til mömmu hennar eftir vinnu. Hún var ekki heima og segist Dofri hafa átt kurteisilegt spjall við eldri dóttur sína og fengið knús frá þeirri litlu.
„Um kvöldið fékk ég eftirfarandi skilaboð frá móður þeirra: „Óska eftir því að þú látir vera að koma að heimili mínu og dætra minna. (Feitletrun mín) Þurfir þú að koma einhverju til skila þá fer ég fram á að þú tilkynnir það í tölvupósti og það verði fundin staðsetning til afhendingar.“
Dofri segist hafa svarað þessu kurteisilega og birtir svar sitt máli sínu til stuðnings.
„Mun því hér eftir sem hingað til velja kurteisleg, bein samskipti frekar en fjandsamlegt, kalt stríð.“
„Mitt svar: „Sæl. Flestir fráskildir foreldrar gera sér far um að eiga vinsamleg samskipti, barna sinna vegna. Þegar foreldri sýnir vanþóknun, heift og kulda í garð hins foreldrisins fyrir framan barnið sitt er það að gera barninu verulega illt. Ef það er þitt val er lítið sem ég get gert í því. Það er ekki á mínu valdi. Ég ræð bara hvað ég geri. Mun því hér eftir sem hingað til velja kurteisleg, bein samskipti frekar en fjandsamlegt, kalt stríð. Mun ekki senda tilkynningar í tölvupósti til að finna staðsetningar til afhendingar á stígvélum og pollagöllum. Mun bara banka upp á með bros á vör. Nú erum við að fara að flytja í Safamýrina þannig að við verðum hvort sem er alltaf að rekast hvert á annað. Í stað þess að forðast samskipti legg ég til að við reynum að spjalla kurteislega saman um daginn og veginn fyrir framan stelpurnar. Það væri mikið betra fyrir þær en kalda stríðið. Með góðri kveðju, Dofri.”
Nokkrum dögum eftir þetta, eða þann 30. ágúst, segist Dofri hafa fengið símtal frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem honum var tjáð að fyrrverandi eiginkona og lögmaður hennar hafi komið og kvartað undan honum.
„Ég dríf mig niður eftir með hjartslátt og kvíðahnút í maga.“
„Ég á að hafa brotið á friðhelgi einkalífs hennar og viðhaft meiðandi ummæli. Það sé ekki enn búið að leggja fram kæru, hvort ég vilji koma í viðtal og segja frá minni hlið. Ég dríf mig niður eftir með hjartslátt og kvíðahnút í maga. Ekki á hverjum degi sem ég er boðaður á fund lögreglunnar,“ segir Dofri og bætir við að þar með hafi byrjað tveggja klukkustunda yfirheyrsla þar sem lögreglukona las honum pistilinn eins og hann orðar það.
„Þrýsti fast á mig að undirrita skjal sem lögfræðingur fv hafði útbúið sem fól í sér að ég myndi ekki koma nærri heimili fv (og þar með dætra minna) eða vinnustað (þangað á ég reyndar ekkert erindi) og að ég myndi samþykkja að tjá mig aldrei á opinberum vettvangi um fv. Ég sagðist bara vilja fá að vera pabbi stelpnanna minna í friði og eiga kurteisleg samskipti við mömmu þeirra. Það gæti varla verið glæpur að banka upp á til að afhenda útiföt eða bíða fyrir utan eftir að dóttir mín komi heim svo ég geti sagt henni að afi hennar sem hún hefur ekki haft samband við í ár sé alvarlega veikur og óvíst hvort hann lifi nóttina af. Lögreglukonunni fannst lítið til um mín sjónarmið, sagði að ég gæti endað í fangelsi og spurði hvort ég héldi að það væri betra fyrir stelpurnar mínar. Að pabbi þeirra væri í fangelsi. Pressaði hart á að ég skrifaði undir sjálfskipað nálgunar- og tjáningarbann,“ segir Dofri og bætir við að hann hafi neitað því að skrifa undir.
Þann 1. september segist Dofri hafa átt sáttafund hjá sýslumanni vegna beiðnar fyrrverandi um að fá lögheimili dóttur þeirra til sín og að fá greitt meðlag.
„Ég hef neitað þessari beiðni þar sem það eru engar ástæður til annars en að dóttir okkar eigi gott samband við mig og mína fjölskyldu og að ég er alltaf tilbúinn að borga allt fyrir hana sem þarf. Ég mætti því á sáttafundinn með örlitla von um að það væri hægt að setja punkt aftan við deilur og þras og byrja upp á nýtt. Til dæmis út frá þeim punkti að það væri mikilvægt fyrir dóttur okkar að eiga gott samband við föður sinn,“ segir Dofri og bætir við að þær vonir hafi orðið að engu því fyrrverandi eiginkona hans hafi mætt á fundinn fyrir hönd dóttur þeirra með yfirlýsingu þess efnis að engar sættir væru mögulegar.
Dofri segir svo að 8. september hafi stefnuvottur bankað upp á meðan hann var að lesa kvöldsögu fyrir dóttur sína. Í stefnunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur var gerð sú krafa að lögheimili eldri dóttur þeirra yrði flutt til fyrrverandi eiginkonu hans.
„Ég hef áhyggjur af því hvernig henni líður í umhverfi sem er svona hatursfullt í garð pabba hennar. “
„Stefnuna las ég yfir um helgina. Hún er skrautleg og mikið ómenni sem ég á að vera. Þar kemur m.a. fram að eina ástæða þess að eldri dóttir okkar hafi fallist á að dvelja hjá mér hafi verið að hún óttaðist svo um velferð litlu systur sinnar,“ segir Dofri.
Í dag mætti hann í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem hann fékk frest til að skila greinargerð.
„Mun eyða næstu vikum í það. Væri til í að nota tímann minn í eitthvað allt annað. Þetta kemur líklega til með að kosta milljónir sem ég á ekki til. Ef ég ætti þær til vildi ég frekar nota þá til að gera eitthvað fyrir stelpurnar okkar. Ég hef áhyggjur af velferð litlu dóttur minnar. Ég hef áhyggjur af því hvernig henni líður í umhverfi sem er svona hatursfullt í garð pabba hennar. Ég hef áhyggjur af að ná aldrei aftur sambandi við eldri systur hennar tvær. Ég elska þær báðar af öllu hjarta og sakna þeirra sárt. Foreldri sem sífellt slær á útrétta sáttahönd vill í raun ófrið til að halda börnunum í hollustuklemmu. En segja svo kannski allt aðra sögu út á við. Það er ekkert sem ég get gert í því. Annað en að segja frá. Og halda áfram að bjóða sættir,“ segir Dofri að lokum.