Árlegt uppboð lögreglunnar á óskilahjólum
Í dag, laugardag, mun lögreglan í Reykjavík bjóða upp 209 óskilareiðhjól sem eru í hennar vörslu. Margir hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar, enda oft hægt að gera verulega góð kaup og næla sér í hjól á góðu verði.
Þórir Ingvarsson lögregluþjónn varð fyrir svörum þegar blaðakona sló á þráðinn til að forvitnast um stemninguna í aðdraganda uppboðsins. „Hún er frábær eins og vanalega. Við erum með óvenjumörg hjól þar sem verkfall hjá sýslumanni í fyrra kom í veg fyrir uppboð að vori. Þegar við héldum uppboðið í fyrrahaust var því ekki eins mikill áhugi og vant er og fáir mættu.“
En hvað gerist ef einhver mætir og sér stolna hjólið sitt á meðal uppboðshjóla? „Það hefur reyndar aldrei gerst, en að sjálfsögðu mundum við skoða það mál og greiða úr því. Reyndar hafa öll hjólin sem við bjóðum upp verið í vörslu okkar í ár eða meira, svo að í flestum tilfellum hugsa ég að tryggingar hafi greitt þau stolnu út til eigenda. Þau hjól væru þá í raun eign tryggingafélaganna.“
Þórir vill líka benda á að þeir sem sakna hjóla geta skoðað Pinterest-síðu lögreglunnar, en þar eru birtar myndir af reiðhjólum, og reyndar öllum óskilamunum sem koma til lögreglunnar. „Það er um að gera að kíkja á síðuna. Þar eru öll hjólin sem verða boðin upp og líka þau sem hafa verið hjá okkur í styttri tíma en ár. Við viljum endilega koma óskilamunum til eigenda.“
Uppboð lögreglunnar á reiðhjólum hefst á morgun, laugardag 7. maí, kl. 11, í Skútuvogi 8. Greiða þarf reiðhjólin við hamarshögg og tekið er við greiðslu í beinhörðum peningum eða með debetkorti.