Bubbi Morthens, náttúrubarn og söngvari, lýsti yfir stuðningi við Andra Snæ, sem næsta forseta. Í sömu yfirlýsingu gerði Bubbi athugasemd við framgöngu fjölmiðla og Guðna Th. í garð Ólafs Ragnars. Bubbi segir allt gert til að reyna að koma höggi á Ólaf Ragnar. „… mér finnst ekki sæmandi hvernig það er gert og hvernig fjölmiðlar hamast á honum.“ Þarna hefur söngvaskáldið nokkuð til síns máls. Hér er rétt að hafa í huga að sú framganga sem Bubbi lýsir er líklegust til að gagnast Ólafi Ragnari mest þegar upp verður staðið. Býsna margir eru mótfallnir svona kosningabaráttu.