fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025

Gettu hver varð fertugur í gær

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 27. ágúst 2020 10:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir eru ófáir sem muna eftir stjörnunni Macaulay Culkin. Sumir þekkja hann ef til vill betur sem Kevin McCallister úr McCallister fjölskyldunni, sem gat ekki með nokkru móti munað eftir aumingja drengnum þegar fjölskyldan fór í frí.

Hér er auðvitað verið að tala um sígildu jólamyndirnar Home Alone og Home Alone 2. Fáir úr þúsaldarkynslóðinni tengja ekki við ævintýri Kevins á heimili sínu í Chicago og svo í New York og stríði hans við „sticky bandits“ durtana Harry og Marv.

Það kann því að skjóta mörgum skelk í bringu að heyra að Culkin varð í gær fertugur að aldri.

Culkin hefur reyndar fyrir löngu síðan afsalað sér krúttlegu sakleysi Kevins McCallister, en árið 2004 var hann handtekinn með talsvert magn fíkniefna á sér. Lagði lögregla þá hald á 17 grömm af kannabisefnum, auk rúmlega 30 gramma af diazepam efnum. Í viðtali við blaðið Esquire, í tilefni fertugsafmælis síns segist Culkin hafa snúið baki við fíkniefnum og lífsstílnum sem þeim fylgir. Sagði Culkin: „Ég snerti þau ekki. Ég elska þau samt. Þau eru eins og gamlir vinir. En stundum þarf maður að fjarlægjast vini sína.“ Hann og kærasta sín, Brenda Song, eru nú að reyna að eignast barn, að sögn Culkins.

Macaulay sjálfur ákvað að fagna tímamótunum með því að styggja fylgjendur sína á Twitter, og virðist hafa vitað nákvæmlega hvernig best væri að gera slíkt:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö
Eyjan
Fyrir 13 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.