fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Fyrrverandi eiginmaður JK Rowling tjáir sig um ásakanir um ofbeldi: „Ég sé ekki eftir því að hafa slegið hana“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 12. júní 2020 09:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi eiginmaður rithöfundarins JK Rowling, Jorge Arantes, hefur gengist við að hafa beitt rithöfundinn ofbeldi á meðan á hjónabandi þeirra stóð. Nánar tilgreint viðurkenndi hann að hafa slegið hana utan undir en segist jafnframt ekki sjá eftir því. The Sun greinir frá.

JK Rowling er frægust fyrir bækur hennar um galdradrenginn Harry Potter en Rowling hefur verið áberandi í fréttum undanfarnar vikur eftir að hún lét ummæli falla sem þykja sýna fram á fordóma hennar gegn trans fólki.

Rowling steig fram eftir gagnrýnina og greindi frá því að hún væri þolandi heimilisofbeldis og að Jorge væri gerandi hennar.

Jorge hefur nú tjáð sig um ásakanirnar og viðurkennir að hann hafi slegið fyrrverandi konuna sína, en segist ekki sjá eftir því. Í samtali við The Sun segir hann: „Ég sló Joanne – en þetta var ekki viðvarandi ofbeldi. Ég sé ekki eftir því að hafa slegið hana. Ef hún heldur öðru fram, þá er það hennar mál. Það er ekki satt að ég hafi lamið hana.“

Jorge segir að um einangrað tilvik hafi verið að ræða. Hann hafi slegið hana þegar hún fór frá honum. „Já það er satt að ég hafi slegið hana, en ég beitti hana ekki viðvarandi ofbeldi“

Jorge og Rowling á meðan á hjónabandi þeirra stóð
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.