fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025

Lesið í tarot Áslaugar Örnu: Erfiðleikar í ráðuneyti og óumflýjanlegt missætti

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 15. september 2019 10:30

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir..

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók nýverið við embætti dómsmálaráðherra og varð þá næstyngsti ráðherrann sem hefur nokkurn tímann setið í ríkisstjórn. DV fannst því tilvalið að leggja fyrir hana tarotspil, en lesendur DV geta sjálfir dregið sér spil á vefnum.

Erfiðleikar og missætti

Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Áslaugu Örnu er 3 sverð. Það spil táknar þann gífurlega metnað sem Áslaug Arna hefur og einnig þau völd sem hún hefur nú fengið. Þessum völdum fylgir oft missætti og gæti ráðherrann verið að finna fyrir því núna. Þegar tekið er við nýju starfi koma upp alls kyns erfiðleikar sem Áslaug Arna kann illa að takast á við, en með röggsemi sinni lærir hún smátt og smátt að verða betri stjórnandi. Þessir erfiðleikar og missætti eru nauðsynlegur fylgifiskur þess að taka við nýju starfi en heyrir fljótt sögunni til. Þá tekur við nýr kafli í ráðherratíð Áslaugar Örnu þar sem hún er í góðu jafnvægi og með eindæmum bjartsýn.

Hlustar með hjartanu

Næsta spil er Bikargosi, sem segir margt um hvaða mann Áslaug Arna hefur að geyma. Hún er rólyndismanneskja og góður námsmaður. Þótt hún sé oft inni í boxinu starfs síns vegna er hún einnig mjög listræn. Hún er vinur í raun og alltaf til staðar. Jafnframt er hún frekar hlédræg og hleypir ekki hverjum sem er að sér. Það er gott skref fram á við fyrir Áslaugu Örnu að gegna ráðherraembætti. Í embætti eflir hún eigin þroska og leyfir sköpunarhæfileikum sínum að njóta sín. Hún hlustar með hjartanu og tekur ákvarðanir með huga og hjarta í bland. Samhliða nýrri vinnu finnur hún sér nýtt áhugamál sem tengist mjög andlegri heilsu.

Ætlar alla leið á toppinn

Loks er það Hangandi maður. Þótt spilið sé ógnvænlegt þá er það gott fyrir ráðherrann. Áslaug Arna er reiðubúin til að leggja sig alla fram í þessu stóra verkefni. Hún þráir að setja sitt mark á ráðuneytið og telur að góð störf innan þess muni opna fyrir hana aðrar og stærri pólitískar dyr. Hún ætlar sér alla leið á toppinn og telur að vera hennar í dómsmálaráðuneyti muni greiða leið hennar að forsætisráðherrastólnum. Hins vegar telja margir að Áslaug Arna sé bara í þessu starfi fyrir peningana, en það er alls ekki svo. Hún er með ákveðinn málstað og hugsjónir sem hún heldur fyrir sig þar til réttur tímapunktur kemur. Áslaug Arna berst fyrir ljósi, en er ekki fær um það fyrr en hún viðurkennir myrkrið. Hún þarf að vera sátt í eigin skinni og muna að ef hún afneitar eðli sínu og innstu þrám verður hún háð þeirri afneitun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Kyle Walker í Burnley

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Dæmdur í fangelsi og laug að kornungum syni sínum: Skólabróðir færði honum fréttirnar – ,,Það var auðvelt að ljúga“

Dæmdur í fangelsi og laug að kornungum syni sínum: Skólabróðir færði honum fréttirnar – ,,Það var auðvelt að ljúga“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Allir á einu máli um Höllu forseta

Allir á einu máli um Höllu forseta
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Angist í Texas – 24 látnir og 23 stúlkna enn saknað

Angist í Texas – 24 látnir og 23 stúlkna enn saknað
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ástþór í hatrömmum deilum við meintan svikahrapp vegna gluggaviðskipta – Skrautlegar ófrægingarherferðir á báða bóga

Ástþór í hatrömmum deilum við meintan svikahrapp vegna gluggaviðskipta – Skrautlegar ófrægingarherferðir á báða bóga
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.