Kynþokki Íslendinga er nokkurn veginn óumdeildur. Við höfum fúslega gengist við því að vera fallegasta þjóð í heimi (auk þess að eiga hreinasta vatnið, tærasta loftið, mikilfenglegustu fossana, bragðbesta hvalkjötið og spilltustu stjórnmálamennina), þó að erfitt kunni að reynast að skera úr um sannleiksgildið eða mælanleikann. Fyrirbærið hefur áhrif á okkur öll. Stundum kveikir kynþokki annarra óra um ástarleiki og gildir þá einu hver hjúskaparstaða þess er sem þá upplifir. Þó svo að einmaka sambönd séu algengasta sambandsformið í samfélaginu þýðir það ekki að þeir sem parast séu dauðir úr öllum æðum. Það er ofureðlilegt að girnast aðra – þó svo að með einmakasamningi sé tjáður vilji og ásetningur um að láta ekki undan löngunum heldur halda þeim huglægum. Kynþokki er afstætt fyrirbæri og tengist ekki alltaf því augljósa og yfirborðskennda. Stundum er það fasið sem lokkar, augnaráðið, eitthvað sem sagt er eða sýnileg afrek af einhverju tagi. Sýnileiki í fjölmiðlum getur að auki haft heilmikil áhrif á hvert órarnir beinast, einfaldlega vegna þess að suma sjáum við oftar en aðra.
DV leitaði á sínum tíma til nokkurra álitsgjafa um það hvaða Íslendingar væru álitlegustu bólfélagarnir og endurbirtum við nú niðurstöðurnar. Tekið skal fram að ekki var spurt um reynslu álitsgjafanna af raunverulegu kynlífi heldur aðeins hvaða einstaklinga þeir teldu eiga heima á listanum út frá þeirra eigin kynþokkamati.
Ágústa Eva Erlendsdóttir – Rauðhærð, glæsileg og sterk eins og Lína langsokkur. Bæði karlar og konur nefndu hana oftar en nokkra aðra konu sem komst á blað. Ágústa vinnur slaginn og er eftirsóttasti kvenkyns bólfélagi Íslands.
Skúli Mogensen – Athafnamaðurinn knái var langoftast nefndur til sögunnar bæði af kvenkyns og karlkyns álitsgjöfum. Hann hlýtur því titilinn eftirsóttasti karlkyns bólfélagi Íslands.
Helgi Björnsson – Hverjum finnst ekki rigningin góð? „Það er erfitt að lýsa sjarmanum, en hann er þarna,“ sagði ung kona í hópi álitsgjafa.
Saga Garðarsdóttir – Valkyrjuleg og einstakur húmoristi.
Sölvi Tryggvason – Fjölmiðlamaðurinn sem dvelur gjarnan í heitu löndunum og birtir af sér fínar myndir í jógastellingum heillar marga.
Gunnar Nelson – Kröftugur kroppur og einbeittur andi.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir – Fríð og frambærileg kona með heillandi framkomu. „Ef hún og Skúli stæðu hlið við hlið, mundi ég alltaf velja hana,“ sagði gagnkynhneigður, kvenkyns álitsgjafi.
Lilja Birgisdóttir – Listakona og partur af Kling og Bang-klíkunni.
Þessi voru líka nefnd til sögunnar: