fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025

Klárar Íslenskar konur sem eru á lausu

Aníta Estíva Harðardóttir
Laugardaginn 17. febrúar 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefnumótamenning á Íslandi hefur aldeilis breyst á síðustu árum með tilkomu samfélagsmiðla og smáforrita. Hér áður fyrr bauð fólk þeim sem þau höfðu áhuga á, á stefnumót og kynntist fólk almennilega þar. Nú þarf ekki nema eina stroku til hægri til þess að lýsa áhuga og þá getur fólk farið að spjalla saman samstundis og komist að því hvort þau eigi samleið eða ekki.

Bleikt.is tók saman lista af efnilegum og klárum konum sem eru á lausu:

Manúela Ósk

Manúelu ættu flestir að þekkja. Sigraði hún keppnina ungfrú Reykjavík og ungfrú Ísland árið 2002 og hefur síðan þá verið mikið í sviðsljósinu.

Þórunn Antonía

Þórunn Antonía er ein af hæfileikaríkustu söngkonum landsins. Einnig er hún þekkt fyrir að stofna Facebook síðuna Góða systir sem hefur yfir 50 þúsund meðlimi. Þórunn stofnaði síðuna til þess að dreifa áfram jákvæðni og hvatningu fyrir Íslenskar konur.

Auður Ómarsdóttir

Auður Ómarsdóttir er framúrskarandi myndlistarkona sem er þekkt fyrir fegurð sína og þokka.

Ragnheiður Haralds- og Eiríksdóttir

Ragga er lærður hjúkrunarfræðingur og starfar hún við geðhjúkrun hjá Tækniskólanum. Ragga er einnig sérstaklega vel að sér þegar kemur að vitneskju um kynlíf og tekur hún á móti einstaklingum og pörum í viðtöl. Ragga skrifar mikið af greinum um kynlíf og fjallar um það opinberlega.

Diljá Ámundadóttir

Diljá Ámundadóttir er upplýsingafulltrúi Hörpunnar ásamt því að sitja í Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar og Heilbrigðisnefndar.

Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir

Lína Birgitta er ein af þekktustu samfélagsmiðlastjörnum landsins. Lína er einnig mikill frumkvöðull og á hún bæði sína eigin úra línu og íþróttafatalínu.

Karítas Harpa

Karítas Harpa er ein af efnilegustu söngkonum landsins. Karítas flaug upp á sjónarsviðið þegar hún sigraði aðra þáttaröð The Voice Iceland í byrjun árs 2017. Karítas ásamt félögum sínum í Fókus hópnum eru komin áfram í úrslit söngvakeppni sjónvarpsins sem er þann 3. mars næstkomandi.

Harpa Einarsdóttir

Harpa er sérstaklega hæfileikarík listakona og fatahönnuður sem hannar undir merkinu MYRKA.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Áslaug hefur verið alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður með Sjálfstæðisflokknum síðan árið 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Skrif Gunna Helga um vælukjóa frá Akureyri vekja athygli – „Skiptir auðvitað engu máli núna“

Skrif Gunna Helga um vælukjóa frá Akureyri vekja athygli – „Skiptir auðvitað engu máli núna“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ætlar ekki að sætta sig við það að vera varaskeifa hjá Liverpool

Ætlar ekki að sætta sig við það að vera varaskeifa hjá Liverpool
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

FKA konur í laxveiði – kraftur, gleði og maríulaxar

FKA konur í laxveiði – kraftur, gleði og maríulaxar
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hryllingurinn við Skyggnisbraut fyrir dóm – Hamed ákærður fyrir manndrápstilraun

Hryllingurinn við Skyggnisbraut fyrir dóm – Hamed ákærður fyrir manndrápstilraun
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Vendingar í stóra skákborðsmálinu – Páli í Pólaris gert að greiða hálfa milljón í viðbót

Vendingar í stóra skákborðsmálinu – Páli í Pólaris gert að greiða hálfa milljón í viðbót
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Er þétta lélegasti svikapóstur undanfarinna missera? – „Þú ert undirorpinn ýmsum lagalegum málsmeðferðum“

Er þétta lélegasti svikapóstur undanfarinna missera? – „Þú ert undirorpinn ýmsum lagalegum málsmeðferðum“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Elon Musk bálreiður vegna viðbragða við ummælum stjörnunnar um Charlie Kirk

Elon Musk bálreiður vegna viðbragða við ummælum stjörnunnar um Charlie Kirk
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.