fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

7 mikilvægir hlutir til þess að eiga fyrir nýfædd börn

Mæður.com
Laugardaginn 27. október 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég var 18 ára þegar ég varð ólétt af Óla og viðurkenni fúslega að ég pældi ekki í neinu hvað við þyrftum að eiga og þess háttar. Ég tók bara við öllu sem mér var gefið og pældi ekki meira í því.

En þegar ég varð ólétt aftur með Villimey þá pældi ég aðeins meira í þessu og margt sem ég keypti var bara algjör óþarfi og peningasóun (fyrir mig allavega) Hérna er listi af hlutum sem mér finnst vera mikilvægt að eiga.


1. Vagga

Ég fékk lánaða bast vöggu á hjólum fyrir Óla og var það algjör lífsbjörg, ótrúlega þægilegt og fyrir mér algjört mikilvægt en þær eru dýrar svo ég keypti ekki þegar ég var ólétt af Villimey, en ég fann hvað mig vantaði vöggu og langaði í, þannig ef þið hafið tök á því eða vitið um einhverja vöggu í geymslu hjá einhverjum þá um að gera að fá sér!

2. Brjóstapúði

Mikilvægasti hluturinn minn fyrir utan börnin var brjóstapúðinn! Notaði hann mikið á meðgöngunni með Villimey, var með mikla grindagliðnun og púðinn hjálpaði helling. Svo auðvitað þegar það kom að brjóstagjöfinni, það er svo mikilvægt að vera í réttri og þægilegari stöðu uppá að þú fáir ekki vöðvabólgu eða líði óþægilega á meðan þú ert að gefa. Sama gildir um pelabörn!

3. Hreiður

Okey þetta er ekki beint það mikilvægasta en þetta er lúxus vara og gott að hafa, notaði þetta ekki með Óla og fann ekkert fyrir því að ég þurfti á þessu að halda en notaði á Villimey og fannst mjög þægilegt svona fyrstu vikurnar. Þannig ef þú getur fengið þetta gefins eða ódýrt þá já mæli ég með!

4. Skiptitaska

Góð skiptitaska skiptir máli! Mér var gefin taska þegar ég átti Óla sem var ekki gerð sem skiptitaska og fannst mér mjög pirrandi að hafa allt útum allt, ég elska þessa tösku samt og nota hana mikið í ferðalög í dag enda risastór! En með Villimey ákvað ég að kaupa svona típíska tösku með hólfum útum allt, það er svo gott að hafa töskuna skipulagða og allt á sínum stað. Ekkert vesen.

5. Angel Care

Ég fékk í gjöf Angel care tæki þegar Óli fæddist og mér fannst þetta algjör draumur að hafa og notaði mikið, enda svaf Óli mikið úti í vagni. Ég er ekki með aðstöðu til að hafa Villimey úti svo ég fékk mér það ekki aftur. En finnst þetta algjjörlega mikilvægt ef börnin sofa í öðru herbergi eða ef þið hafið aðstöðu og ætlið að láta börnin sofa úti á daginn.

6. Ömmustóll

Það er algjör lífsbjörg að hafa ömmustól, ég notaði hann með Óla og Villimey mjög mikið. Ótrúlega þægilegt að hafa hann þegar barnið er pirrað eða þegar þú þarft að kíkja í sturtu, elda eða hvað sem er.

7. Burðarsjal/poki

Þetta var mikilvægt fyrir mig fyrstu mánuðina hjá báðum krökkum, og notaði ég þetta mikið sérstaklega með Óla. Bara muna að fjárfesta í góðum poka eða sjali.


Vona að þetta nýtist ykkur sem eigið von á ykkur eða nýbúnar að eiga.

Færslan er skrifuð af Gunni Björnsdóttur og birtist upphaflega á Mæður.com

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Málefni Salarins í Kópavogi: Saka bæjarstjóra um takmarkaðan skilning og áhuga á lýðræði

Málefni Salarins í Kópavogi: Saka bæjarstjóra um takmarkaðan skilning og áhuga á lýðræði
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Ögmundur segir Kveiks-málið meira en starfsmannamál – „Gróf ærumeiðing um góða og faglega fréttakonu“

Ögmundur segir Kveiks-málið meira en starfsmannamál – „Gróf ærumeiðing um góða og faglega fréttakonu“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Féll í yfirlið á Subway og var fluttur á sjúkrahús: ‘Stóri engillinn’ kom til bjargar – ,,Er allt í lagi með þig!?“

Féll í yfirlið á Subway og var fluttur á sjúkrahús: ‘Stóri engillinn’ kom til bjargar – ,,Er allt í lagi með þig!?“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

England: Chelsea kom til baka á Villa Park

England: Chelsea kom til baka á Villa Park
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

15 þúsund manns hvetja hann í að vera áfram

15 þúsund manns hvetja hann í að vera áfram