fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Myndband: Nýr leikjaþáttur Ellen er stórskemmtilegur

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 27. desember 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellen er sannkölluð drottning spjallþáttanna, á pari við sjálfa Oprah. Hún hefur séð um eigin spjallþátt, The Ellen DeGeneres Show, síðan 2003 og núna er komið að nýjum þætti hennar, Game of Games, en sérstakur kynningarþáttur var frumsýndur 18. desember síðastliðinn.

Þættirnir byrja í sýningu þann 2. janúar næstkomandi, en NBC sjónvarpsstöðin lét gera alls sex klukkustunda langa þætti. Líklegt er þó að þeir verði fleiri, Ellen er dáð af áhorfendum og aðdáendum um allan heim og þættirnir eru stórskemmtilegir.

Þættirnir snúast um spurningar og þrautir. Átta keppendur keppa í fjórum þrautum, tveir í hverri þar sem einn vinnur. Fjórir sigurvegarar keppa síðan saman í lokaþrautinni þar til einn stendur eftir. Sá einstaklingur á síðan kost á að setjast í Heita sætið (Hot Seat) og svara spurningum á tíma. Fjöldi réttra svara segir til um hversu háa peningafjárhæð hann fer með heim. Í heildina getur hann unnið sér inn 100.000 dollara eða um 10,5 milljónir íslenskra króna.

Það má alveg gera sig að fífli fyrir minni fjárhæð, því að leikirnir snúast akkúrat um það. Ellen fer alla leið með galsann og grínið, þrautirnar eru hver annarri fyndnari og Ellen sjálf er við stjórnvölinn, spyr spurninga og ýtir á takka.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
EyjanFastir pennar
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn