fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025

Tara hjólar í Bubba Morthens – Segir hann líkja ofþyngd við sjálfsvígstilraun

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 30. maí 2017 15:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef gert margar tilraunirnar til að rökræða við Bubba Morthens á kommentakerfum. Hræðsluáróður í hans í hvert skipti sem fjallað er um fitufordóma er með verstu tilfellum sem ég hef séð.“

Svona hefst pistill sem Tara Margrét Vilhjálmsdóttir ritar í dag á facebook síðu sína og vandar hún Bubba þar ekki kveðjurnar. Við birtum hér færslu Töru með góðfúslegu leyfi hennar:

Meðfylgjandi er ein af þessum tilraunum þar sem ég bendi honum á að þessi áróður eigi tæplega rétt á sér og að hann gerir illt verra. Í lok síðustu viku ákvað hann að hann ætlaði ekki lengur að tjá skoðanir sínar á kommentakerfum lengur. Ég lýsti því yfir að ég væri afskaplega fegin enda ærin ástæða til. Ég komst nefnilega að því seinna að hann hefði klikkað út með þessum ummælum:

„Halló, það er ekki þar með sagt að þetta sé body-fasismi að segja að þetta, heldur miklu meira kærleikur, alveg eins og ef þú kemur inn í bílskúr og það hangir einhver í snöru og þú segir: „Nei ég ætla sko ekkert að gera í þessu vinur minn. Ég ætla bara að leyfa þér að hanga, ég gæti lent á forsíðunni.“

Þetta er það alversta sem hefur komið frá honum hingað til. Hann ætlaði svo sannarlega að kveðja kommentakerfin með stæl. Ég hef ekki orð til að lýsa viðbjóðnum og viðurstyggðinni sem það er að líkja feitum líkama við sjálfsvíg. Ég er búin að vera svo reið að ég hef ekki viljað tjá mig um þetta fyrr en eftir nokkra daga umhugsun. Ef að hann hefði raunverulega svona miklar áhyggjur af heilsufari þjóðarinnar myndi hann hlusta, lesa, kynna sér það sem hefur verið skrifað um tengsl heilbrigðis og holdafars og sérstöðu okkar hvað það varðar hér á Íslandi. Hann myndi einnig hlusta þegar talað er um skaðsemi svona orðræðu á líkama og sál feitra. Góð dæmi má finna hér:
Of fóðruð og feit? Eða bara hræðsluáróður?

Fitufordómar eru hatursorðræða

Svona ógeðslegir fordómar og haturstal er það sem raunverulega getur valdið sjálfsvígshugsunum hjá feitu fólki. Hann er ekki bara að gera allt of mikið úr meintum heilsufarslegum vanda tengdum offitu og valda ómældum skaða meðal feitra með þessum ummælum sínum heldur er hann á sama tíma að gera lítið úr sjálfsvígum, helstu dánarorsökinni meðal ungra íslenskra karlmanna. Ég hef staðið í návígi við sjálfsvíg ástvina. Ég þekki óttann, angistina, sorgina sem fylgir því að einhver nákominn manni skuli vera orðinn svo veikur á sálinni að hann sér enga aðra leið út. Það er EKKERT sársaukafyllra.
Ég er guðs lifandi fegin að hann er hættur að spúa frá sér þessum viðbjóðslega „kærleika“ sínum. Það er það langbesta sem hann hefur gert fyrir heilsufar feitra hingað til…

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Wirtz og foreldrar hans flugu til Manchester í gær og funduðu með Guardiola

Wirtz og foreldrar hans flugu til Manchester í gær og funduðu með Guardiola
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Trump vill bæta við 20.000 lögreglumönnum til að flytja fólk úr landi

Trump vill bæta við 20.000 lögreglumönnum til að flytja fólk úr landi
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Hún er samsæriskenningasmiður, andstæðingur bóluefna og getnaðarvarna – Nú verður hún landlæknir og aðalráðgjafi Trump

Hún er samsæriskenningasmiður, andstæðingur bóluefna og getnaðarvarna – Nú verður hún landlæknir og aðalráðgjafi Trump
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Sænsk kona ákærð – Misnotaði hunda kynferðislega

Sænsk kona ákærð – Misnotaði hunda kynferðislega
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Real Madrid leyfir sér að dreyma um Saliba en landar líklegast öðrum frá Englandi í sumar

Real Madrid leyfir sér að dreyma um Saliba en landar líklegast öðrum frá Englandi í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gat ekki orða bundist eftir ógeðfellda hegðun stuðningsmanna Stjörnunnar – „Og börnin syngja með“

Gat ekki orða bundist eftir ógeðfellda hegðun stuðningsmanna Stjörnunnar – „Og börnin syngja með“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.