fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Hnitmiðuð förðunarnámskeið: „Það er nauðsynlegt að læra grunninn“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 20. janúar 2017 10:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Stefánsdóttir hefur kennt konum að farða sig í yfir 30 ár. Kvöldnámskeið hjá No Name taka yfirleitt hálfan dag eða eina kvöldstund og eru ætluð konum á öllum aldri sem vilja ná betri tökum á því að farða sig.

„Áherslan er fyrst og fremst á svokallaða fimm mínútna förðun, fyrir konur sem vilja læra að farða sig á einfaldan og fljótlegan hátt – án þess að eyða of miklum tíma fyrir framan spegilinn“

Kristín Stefánsdóttir

segir Kristín en hún segir jafnframt að margar konur séu hálf hræddar við sumar förðunarvörur og þau ráð sem í boði eru. Það flæða svoleiðis yfir okkur förðunarráðin í fjölmiðlum og tískublöðum og konur eiga það til að halda að þetta sé of flókið og sé ekki fyrir þær. En það er mikill misskilningur.

„Það er nauðsynlegt að læra grunninn til að byrja með, og hann er alls ekki flókinn. Grunnurinn kemur okkur á næsta stig og með honum mun náum við fram náttúrulegri förðun. Svo legg ég alltaf mikla áherslu á „less is more“

segir Kristín.

Að kunna að farða sig rétt, og hæfilega mikið, er nauðsynlegt að læra og á þessum námskeiðum sem Kristín hefur kennt í yfir 30 ár læra konur réttu handbrögðin með því að gera þetta sjálfar undir leiðsögn og finna þá hvað hentar þeim best.

Ungar stúlkur í dag eru mjög framarlega í förðun þar sem Snapchat og bloggsíður um tísku og förðun eru á hverju strái og margar hverjar gætu hreinlega opnað snyrtivöruverslun í herbergjum sínum. Þær þurfa því sérstaklega að læra grunninn ásamt umhirðu húðar og hvernig best er að halda áhöldum og förðunarburstum hreinum, því hreinlæti skiptir jú öllu máli.

Mikið er um að fyrirtæki bjóði starfsfólki sínu á svona námskeið og einnig er þetta vinsæll kostur hjá saumaklúbbum og vinkonuhópum þar sem þær eyða saman góðri kvöldstund og læra réttu handtökin.

Hægt er að fá allar upplýsingar um námskeiðin á www.nnmakeupschool.is eða á sala@noname.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.