fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

„Þú dróst tvær stúlkur inn í bíl, keyrðir upp í Heiðmörk, og myrtir þær“

Sjáðu stiklu úr kvikmyndinni Grimmd sem verður frumsýnd í október

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 31. ágúst 2016 14:30

Sjáðu stiklu úr kvikmyndinni Grimmd sem verður frumsýnd í október

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að talsverð eftirvænting ríki vegna kvikmyndarinnar Grimmd sem frumsýnd verður hér á landi þann 21. október næstkomandi. Myndin segir frá ungum systrum, Sigrúnu og Höllu, sem hverfa af leikvelli í Árbænum og finnast svo látnar í Heiðmörk.

Í kjölfarið fer af stað flókin lögreglurannsókn á hvarfi og láti stúlknanna. Stikla úr myndinni var frumsýnd í dag en þar má sjá rannsóknarlögreglumanninn Jóhannes Schram, sem Sveinn Ólafur Gunnarsson leikur, yfirheyra mann vegna málsins. „Þú dróst tvær stúlkur inn í bíl, keyrðir upp í Heiðmörk, og myrtir þær,“ segir hann.

Myndinni er leikstýrt af Anton Sigurðssyni og með helstu hlutverk í myndinni fara þau Sveinn og Margrét Vilhjálmsdóttir. Fleiri þekktir leikarar koma einnig fram í myndinni, meðal þeirra Atli Rafn Sigurðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og Hannes Óli Ágústsson.

Konstantín Mikaelsson, yfirmaður kvikmyndadeildar Senu sem framleiðir myndina, sagði í samtali við Vísi fyrir skemmstu að þar á bæ gerðu menn sér vonir um að myndin yrði ein aðsóknarmesta mynd ársins.

„Við erum að spá því að þetta gæti orðið ein af tveimur stærstu íslensku myndum ársins og í okkar plönum gerum við ráð fyrir að hún verði á topp 10 listanum okkar þegar árið er gert upp,“ sagði Konstantín.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Lineker skýtur á BBC
Fókus
Í gær

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“
Fókus
Í gær

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicole Kidman hefur kysst marga en þessi koss var sá allra versti

Nicole Kidman hefur kysst marga en þessi koss var sá allra versti