fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024

Vonda fólkið

Kristján Guðjónsson
Þriðjudaginn 9. febrúar 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höfundur: Bryndís Loftsdóttir.

Þrjár konur koma saman þar sem enginn sér til og forma einhvers konar dýrkunarreglu (cult) eða aðgerðasinnabandalag. Dagrún, sem leikin er af Elmu Lísu Gunnarsdóttur, er ný í hópnum og lendir því sjálfkrafa neðst í virðingarstiganum. Hún er í upphafi passlega hædd og smáð af hinum tveimur sem berjast sín á milli um forystuna en þær gæta þess líka að halda Dagrúnu áfram í liðinu. Svo semja þær hlægilega langan gildislista sem þær leggja samviskusamlega á minnið. Stjórnanda hópsins reynist þó auðvelt að breyta gildunum og ekki hjálpar að stjórnarskipti eru tíð.

Andúð, biturð, reiði

Það er ekki ljóst strax í upphafi hvaða sameiginlega andúð bindur þessar þrjár konur saman en klingjandi klisjur úr íslensku þjóðlífi sem hljóma með reglubundnu millibili gefa strax ákveðnar vísbendingar. Samtöl þeirra gera lítið til að dýpka persónusköpunina en hver um sig fær eintal við salinn þar sem þær útskýra stöðu sína.

Það voru vonbrigði hversu yfirborðsleg nálgun verksins var.

Dagrún er nýlega komin með fullt örorkumat og leitar að hlutverki í lífi sínu eftir að hafa slitið sambandi við ofbeldisfullan sambýlismann. Hinar tvær tengjast kirkjunni annars vegar og borgarastéttinni hins vegar. Þær hafa skúrað hrunið burt og kjósa að horfast ekki í augu við ástæður þess að þær sitja nú neðar í þjóðfélagsstiganum en þær eru tilbúnar til að viðurkenna. Þær eru bitrar, reiðar og til alls líklegar þegar þær ákveða að láta til skara skríða gegn innflytjendum sem hingað streyma og þær hafa sannfærst um að eigi sök á stöðu þeirra.

Yfirborðsleg nálgun

Það er stutt síðan leikstjóri verksins, Marta Nordal, frumsýndi áhugavert heimildaverk um Nazanin Askari, pólitískan flóttamann sem dvelur hér á landi. Þar var kafað djúpt eftir sannleikanum í einlægri og áhrifamikilli frásögn. Í þessu verki er sjónum beint að þjóðernissinnum, afstöðu þeirra og voðaverkum gagnvart innflytjendum. Þessar hreyfingar fara stækkandi allt í kringum okkur og áhrifamáttur þeirra er augljós.

Það er allt í lagi að nota steríótýpur kommentakerfanna, hlustenda útvarps Sögu, pólitískra og trúarlegra andstæðinga sinna, en það þarf að fylgja sannfærandi innsýn í líf þeirra og sögu, hvort sem skrifa skal ádeilu eða farsa og ekki sakar að nálgast viðfangsefni sitt af virðingu.

Þess vegna voru það vonbrigði hversu yfirborðsleg nálgun verksins var af hálfu höfundar, Sölku Guðmundsdóttur. Það er allt í lagi að nota steríótýpur kommentakerfanna, hlustenda útvarps Sögu, pólitískra og trúarlegra andstæðinga sinna, en það þarf að fylgja sannfærandi innsýn í líf þeirra og sögu, hvort sem skrifa skal ádeilu eða farsa og ekki sakar að nálgast viðfangsefni sitt af virðingu. Að öðrum kosti mun verkið einungis höfða til eigin þjóðfélagshóps og ekki hafa þau víðtæku áhrif sem leikhús getur megnað og ég efast ekki um að lagt hafi verið af stað með í upphafi.

Náðu ekki tengingu

Leikkonurnar þrjár, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir, þekkja vel inn á hver aðra, eru skemmtilega ólíkar og eiga að baki frábærar leiksýningar eins og Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur. Í þetta sinn náðu þær ekki sannfærandi tengingu við áhorfendur fyrr en í lokaatriðinu sem var kraftmikið og mjög vel útfært.

Tónlist og myndefni, sem kastað var á tjald á sviðinu, mynduðu dramatískt samband og virkuðu vel. Bæði sviðsmynd og búningar voru fábrotin framan af en tóku svo flugið líkt og sýningin öll í lokaatriðinu sem var íburðarmikið og óvæntur hápunktur á verki sem að öðru leyti var áhrifalítið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hera úr leik
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Reiðikast í umferðinni endaði með pastakasti

Reiðikast í umferðinni endaði með pastakasti
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Gæti orðið fullkominn endir hjá Reus

Gæti orðið fullkominn endir hjá Reus
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Viðar segir að fullyrðing Guðmundar standist ekki – „Jájá, það er ástæða fyrir því að ég var ekki í hóp“

Viðar segir að fullyrðing Guðmundar standist ekki – „Jájá, það er ástæða fyrir því að ég var ekki í hóp“
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

5 strangar reglur sem stjörnurnar þurfa að fylgja á Met Gala

5 strangar reglur sem stjörnurnar þurfa að fylgja á Met Gala
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Áhugi Bayern á Ten Hag ekki ýkja mikill eftir allt saman

Áhugi Bayern á Ten Hag ekki ýkja mikill eftir allt saman
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Er hústökufaraldur í Bandaríkjunum eða er hér um áróður hægri manna að ræða?

Er hústökufaraldur í Bandaríkjunum eða er hér um áróður hægri manna að ræða?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Silva aftur heim